Úrval - 01.06.1963, Síða 25
MEXÍKÓBÚAR REISA SKÓLAHÚS ...
33
hluta í vinnu að nokkru leyti.
Stjórnin sendir þeim þá efnið
og útbúnaðinn í smásendingum,
en ekki allt í einu. Estrada höf-
uðsmaður sýndi mér meðal
annars nýjan skóla, með áfastri
kennaraíbúð í litla þorpinu
Santa Ana Acozautla, sem er
sveitaþorp með 866 manns fyrir
austan bæinn Puebla rétt hjá
þjóðveginum til Vera Cruz. Um
skóla þennan sagði hann: „Það
var byrjað með 160 peso fram-
lagi (£ 5-13-6) frá hverjum
fjölskylduföður hérna í þorpinu.
Á hverjum föstudegi og laugar-
degi fóru fram samskot til skóla-
byggingarinnar. Þeir eru nú
búnir að eyða samtals 27.000
peso (957 sterlingspundum) og
skulda aðeins 3000 peso (106
sterlingspund).“
Patricio Luna, unsi kennarinn
i Santa Ana, svndi okkur skól-
ann og íbúðina sína. Hann hafði
sjálfur hjálpað til að leggja allar
leiðslur og sýndi okkur, hvernig
þær koma tilskornar í réttum
lengdum, sem auðvelt er að
þekkja sundur, enda eru þær oft
með ýmsum litum í þvi augna-
miði. Þær eru dregnar i gegn-
um þann hluta af grindinni,
sem er holur að innan. Vatns-
leiðslurnar eru einnig hluti af
grindinni.
Luna hjálpaði einnig til þess
að setja gagnsæja plastglugga i
grindina. Rúðurnar eru margar
kennslutæki um leið, myndir af
sólkerfi, þjóðhetjum, manns-
likamanum o. s. frv. Það er
injög auðvelt að smella þeim í
stálumgjarðirnar og auðvelt að
skipta um, ef um skemmdir
verður að ræða.
Eiginkona kennarans brosti
feimnislega til okkar, þegar
liann sýndi okkur ibúðina
þeirra. Þetta var lítil en snotur
íbúð, dagstofa, svefnherhergi,
eldhús og bað. Henni fylgdu
skemmtileg húsgögn, jafnvel
rúmteppi og gluggatjöld, en þetta
er allt hluti af byggingareining-
unni.
Hinn breiði veggur, sem skil-
ur ibúð kennarans frá skóla-
stofunum, er ein helzta ástæð-
an fyrir hinum furðulega lága
byggingarkostnaði skólanna.
Þar er „blautur veggur“, sem svo
er nefndur, þvi að hann er í
rauninni stór og breiður, til-
búinn vatnsgeymir úr plasti.
Handlaugar, kranar og salerni
eru tengd beint við vegginn
skólastofumegin, en leiðslur i
eldhús og baðherbergi þeim
megin, sem íbúð kennarans er.
Þess vegna verða venjulegar
pipur og rör að miklu leyti
óþörf, og sparar það mikirin
kostnað, bvað snertir efni og
vinnu.