Úrval - 01.06.1963, Síða 26
34
ÚR VAL
Nálægt skólanum í Santa Ana
Acozautla er „percela escolar“
lítill sameiginlegur þorpsakur,
tiu ekrur að stærð, sem allir
rækta í sameiningu. Er þar
ræktað korn, sem síðan er selt
gegn staðgreiðslu til þess að sjá
fyrir þörfum skólans. „Við vinn-
um, svo að börnin okkar megi
læra,“ sagði Estrada höfuðsmað-
ur við mig, þegar við héldum
burt þaðan. „Jafnvel stutt skref
í áttina að miklu takmarki
vekja manni ánægju."
Kannske skoða mexikönsk
skólabörn skólanámið af svo
mikilli alvöru vegna þess, að
allir komast ekki í skóla fyrir-
hafnarlaust í landi þeirra. Þau
skoða tækifærið til þess að læra
sem sérréttindi, sem þeim beri
að grípa fegins liendi likt og
Benito Juárez eða Abraham
Lincoln gerðu slíkt hið sama
fyrir hálfri annarri öld. Maður
þarf ekki annað en að horfa á
hin skæreygu mexikönsku
börn á leið í skóla til þess að
skynja það, hversu stolt þau eru
af skólum sinum, skólanum, sem
þau hjálpuðu til þess að byggja.
Viðhorf þeirra, ásamt áhugan-
um, sem foreldrar þeirra sýna,
er þeir taka þátt i krossferð
þessari, spáir hvort tveggja góðu
uin framtíð Mexikó.
Fljúgandi læknar handa Afríku.
Síðustu 34 árin hefur verið fluglæknisþjónusta í Ástralíu, og
er nú verið að koma á svipaðri þjónustu í Nigeríu. Miðstöðvar
hennar verða í norðurhluta Nígeríu, en þar verða lyfjabyrgða-
stöðvar víðs vegar. Stjórn Ástralíu hefur nýlega gefið þessari
nýju afrísku stofnun nokkur tæki, sem notuð eru við þjónustu
þessa í Ástralíu. Þessi þjónusta er nú rekin frá 13 stöðvum í
Ástralíu, og nær hún yfir um 2 milljón fermílur, og berast
sjúkrastöðvum hennar um 10.000 talstöðvaupphringingar á ári.
— Unesco Courier.
Til eru menn, sem nota dyggðir sínar eins og spegil, sem aðrir
menn geta séð yfirsjónir þeirra í.