Úrval - 01.06.1963, Side 30
38
ÚRVAL
haldið var á vegum Sameinuðu
þjóðanna i New York. Um 1200
haffræðingar frá 54 löndum
skiptust á upplýsingum og
skýrðu frá áætlunum um fram-
tíðarrannsóknir. Þar á meðal
var alþjóSleg rannsókn Ind-
landshafs á vegum sérstakrar
hafrannsóknarnefndar. Robert
G. Snider, bandarískur sérfræS-
ingur í hafrannsóknum, var
skipaður yfirmaSur rannsókn-
anna.
Um jirenns konar alþjóSlega
samvinnu i rannsókn þessari er
aS ræSa: 1. Ýmsar þjóðir leggja
til skip og tæki, ásamt hóp vis-
indamanna. 2. Ýmsar þjóSir
leggja l'ram þjónustu sérfræS-
inga i hafrannsóknum. 3. Ýmsar
þjóSir leggja fram stöðvar í
landi, þar sem aSstaða er sköp-
uð fyrir áhafnir og vísindamenn
á skipunum.
TÍU íiANDARÍSK SKIP.
Framlag Bandarikjanna i al-
þjóSarannsóknum . þessum er
mikið. Þau hafa lagt fram 10
skip og samþykkt að greiSa um
helming kostnaSarins, en búizt
er viS aS kostnaSurinn nemi
alls samtals 13,5 milljónum doll-
ara.
Sérstakt líffræSirannsókna-
skip, Williamsburg aS nafni,
fyrrverandi snekkja Bandaríkja-
forseta, mun taka þátt i rann-
sókn á lífverum þeim, sem lifa
í Indlandshafi. AnnaS banda-
rískt skip, Vema, rannsóknaskip
Columbiaháskólans, mun taka
þátt i kerfisbundinni rannsókn
á 4,000 mílna botnsvæði Ind-
landshafs. ÞaS mun sigla í ein-
tómum hlykkjum yfir Indlands-
haf allt til Fremantle i Ástralíu.
Aðaltilgangur farar þess er að
kortleggja hin ýmsu lög botn-
gruggs og annarra botnefna allt
frá hafsbotni og að jarðskorp-
unni, og munu jarðskjálftamæl-
ingatæki verða notuð við rann-
sóknina á jarSIögum þessum.
Svipaðar rannsóknir af sama
tagi hafa leitt það í ljós, að á
botni Indlandshafs eru djúpar
geilar, liá „fjöll“ og mikill fjall-
garður. Búizt er við, að þessi
rannsókn muni veita frekari
upplýsingar um þessi atriði.
Helzti tilgangur rannsókn-
anna er að safna nákvæmum
veðurfarslegum upplýsingum, er
snerta einnig haffræðina. Mögu-
leikinn á að segja fyrir um komu
staðvinda og áætla breytilegt
regnmagn hefur beina þýðingu
fyrir flóðvarnir og stöðugt
vatnsmagn til jarðyrkjunota.
Skilningur á breytileika sjáv-
arstrauma, aðsetri þeirra og
styrkleika getur leitt til hag-
kvæmari og ódýrari siglinga.