Úrval - 01.06.1963, Síða 64
Beethoven,
hinn íuröulegi
Eftir George E. Marek.
Hann var fullur andstæðna — óskýranlegur, harðráður og
mildur, vitur og fávís —. Hann lét okkur eftir sinfóníur,
sem enn í dag eru hátindur tónlistarinnar.
Ð mikla tónskáld, Ro-
bert Schumann, var
lialdinn þunglyndi síð-
ustu ár ævinnar. Lækn-
ir hans ráðlagSi honum að fara
í gönguferðir, og hann fór í
gönguferðir — á hverjum degi,
alltaf sömu leiðina. Hann gekk
til myndastyttu af Ludwig van
Beethoven.
í vissum skilningi hefur sér-
hvert tónskáld eftir daga Beet-
hovens farið slíka pílagrímsför.
Vissulega liefur sérhvert tón-
skáld, sem síðan hefur dirfzt að
semja sinfóníu, hlotið að viður-
kenna skuld sína við hinn vold-
ug'a tónlistarsmið í Vín, sem
hugsiandi, starfandi, stritandi,
svitnandi, skapandi, lagfærandi,
endurskoðandi aftur og aftur,
reisti byggingu svo víða og háa,
að hún heíur i raun og sann-
leika rúmað alla tónlist allt til
vorra daga.
Af öllum þeim hundruðum
sinfónía, sem samdar hafa verið,
getur enginn keppt við hin níu
miklu sinfónisku verk Beet-
hovens um vinsældir og listræn-
an áhuga. Og hvers vegna? Hvað
er það, sem skipar þeim sæti í
sérflokk? Hafa þau að geyma
minnisverð sönglög, fagra sain-
72
— Reader's Digest —