Úrval - 01.06.1963, Side 67
BEETHOVEN, HINN FURÐULEGI
75
ásakaði vini sína, útgefendur og
hljómsveitarstjóra um, að þeir
prettuðu sig. Ðaginn eftir var
hann iðrandi og bað þá afsök-
uiiar. En sjálfur lofaði hann sex
útgefendum einu af sínum helztu
tónverkum, Missa Solemnis, en
seldi það svo þeim sjöunda.
Hann reyndi einnig að selja Fil-
harminiuhljómsveit Lundúna
gamalt tónverk og lét sem það
væri nýtt.
Hann gat einnig verið nærgæt-
inn, viðkvæmur og hæglátlega
góðviljaður. Þegar ein af vin-
konum hans, barónsfrú Ert-
mann, missti barn sitt, fór Beet-
hoven heim til hennar, settist
þegjandi við slaghörpuna og lék
lengi dags, henni til afþreyingar
og liuggunar. Hann las bækur
eftir Plutark og Shakespeare, en
liann kunni ekki margföldunar-
töfluna. Hann var gæddur frá-
bærri og falslausri frelsisást.
Þegar deilurnar um þrælahald
stóðu í Lundúnum 1823, var
hann vanur að fylgjast með
þingræðunum af óblöndnum
áhuga. Þrátt fyrir það var hann
fullkominn harðstjóri á heim-
ili sínu, einkum gagnvart bróð-
ursyni sínum, Iíarii. Beethoven
hataði ekkju bróður sins, bar
henni á brvn lauslæti, og tókst
að ná drengnum frá henni. Mál-
ið var rekið fyrir lægri og æðri
rétti.
Beethoven, sem þá var orðinn
hálffimmtugur og vissi lítið um
lifið i reynd, átti nú að fara að
ala upp barn. Þá lá við að henn
gerði út af við drenginn með of-
urást sinni og endalausum sið-
ferðispredikunum, en gleymdi
jafnframt að sjá honum fyrir
daglegum máltíðum og vetrar-
ldæðnaði. Baráttan milli frænd-
ans og móðurinnar lagðist svo
þungt á drenginn, að hann gerði
beinlínis tilraun til að svipta sig'
lífi, og að lokum hvarf hann,
sem óþekktur hermaður í austur-
riska hernum.
Beethoven tortryggði einnig
þjóna sína og átti i deilum við
þá. Einn vinur hans hefur sagt
þessa sögu:
„Það var nýafstaðin deila,
sem valdið liafði nágrönnunum
ónæði og báðir þjónar hans
höfðu farið. Beethoven hafði
læst sig inni í setustofunni, og
við heyrðum hann vera að
syngja kafla úr fúgunni í
„Credo“ — syngja, æpa og
stappa í gólfið. Þegar við höfð-
um hlýtt lengi á þessi óhugnan-
legu læti, opnaðist hurðin og i
dyrunum stóð Beethoven af-
myndaður í framan, sennilega
til þess að gera okkur hrædd.
Hann þusaði fyrst eitthvað ill-
skiljanlegt, en svo sagði hann
með augljósri áreynslu: „Dá-
laglegt athæfi þettal Allir hafa