Úrval - 01.06.1963, Blaðsíða 91
99
Ætti ég heima í Englandi, vildi
ég helzt vera maður, þar næst
hestur, svo hundur og sízt kona.
En hvað Bandaríkin snertir, er
röðin þveröfug.
— Bruce Gould, ritstjóri.
Nábúi Óla gamla mætti honum
dag nokkurn með stóran kassa á
bakinu.
„Ertu með rikiskassan, Óli
minn?“ spurði hann.
„Ónei, það er botn í þessum."
Skilgreining geimferða: Eina
þekkta aðferðin til þess að yfir-
gefa þennan heim án þess að deyja.
Á baðströndinni eru venjulega
hægt að þekkja þá giftu úr af
augnaráði þeirra einu saman. -—
Það er svo leiftursnöggt og
skömmustulegt.
— Saturday Evening Post.
Sumir piparsveinar eru of gaml-
ir til þess að vera álitnir eftirsókn-
arverðir, og aðrir eu of eftirsókn-
arverðir til þess að vera álitnir
gamlir.
Danielle Darrieux, leikkona.
©
Sonur bóndans var nýbúinn að
fá fótbolta og skildi hann eftir
rétt við hænsnagirðinguna. Haninn
kom auga á hann og kallaði sam-
stundis allar hænur sínar á sinn
fund:
„Jæja, maddömur góðar,“ sagði
hann ísmeygilega. „Það er ekki
svo að skilja, að ég vilji vera á-
litinn vanþakklátur eða koma með
óþarfa aðfinnslur, en samt vildi
ég gjarnan sýna ykkur sýnishorn
af afköstunum i hænsnagarði
næsta bæjar.“ ✓
0
Tveir jazzleikarar voru að synda
úti fyrir strönd Florida. Þeir sáu
tvo krókódíla, og andartaki síðar
hrópaði annar hljóðfæraleikarinn:
„Æ, hver fjandinn, krókódíllinn
var að bíta af mér annan fótinn!“
„Hvor var það?“ hrópaði vinur
hans.
Þá varð löng þögn. Að lokum
kom svarið: „Æ, hvernig í fjand-
anum á ég að vita það, maður?
Þessir krókódílar líta allir eins
út.“
0
Erfitt væri að taka jurtafræði-
nemanum fram, sem gekk inn í
prófsalinn með 24 mismunandi
blómategundir í hnappagatinu.