Úrval - 01.06.1963, Page 96
104
Ú R VA L
eins fyrir ameríska negra, heldur
og þjóðina alla í heild. Ég held
a® Lincoln myndi lika segja:
„Vel gert.“
Hvar sem litiS er — í verzl-
un, menntun, trúmálum, málara-
list, tónlist, íþróttum, hernaði,
bókmenntum, lögum, læknisfræði,
landbúnaði — hvarvetna hafa
svartar hendur lagt hönd á plóg-
inn.
Þeir eru ekki margir (fyrir
utan sagnfræðinga) sem vita t. d.
að í meginlandsher George Was-
hingtons voru 5000 svartir her-
menn sem gegridu herþjónustu í
14 stórfylkjum. Sú staðreynd er
heldur ekki alkunn, að margar
negradierdeildiv börðust í Borg-
arastyrjöldinni fyrir málstað
Ríkjasambandsins og í báðum
heimsstyrjöldunum barðist rúm-
iega millj. svartra hermanna.
Ég get auðveldlega liugsað mér
gleði og stolt afa míns, ef hann
hefði getað lesið, eins og ég las
nýleg'a að á bandaríska herskip-
inu U.S.S. Falqout, sem hefur
heimahöfn í Pearl Harbour, væri
svartur yfirforingi (hinn 39 ára
Samuel W. Gravely frá Rich-
mond, Va.) eða að í ameríska
flughernum væri svartur tveggja-
stjörnu flugliðsforingi (Benja-
mín 0. Davis major frá Washing-
ton). Auk þess er aðstoðar-blaða-
fulltrúi Kennedys forseta svart-
ur, Andrew Hatcher að nafni og
sömuleiðis James C. Evans, að- j
stoðarmaður varnarmálaráðherr-
ans. f
Hundruð svartra karla og
kvenna hafa öðlazt doktorsnafn-
bót í heimspeki og enn fleiri tek-
ið meistara- og kandidatspróf. I
þjónustu lúthersku og kaþólsku
kirkjunnar starfa fjölmargir
svartir prestar og biskupar og
negrar gegna störfum sem kenn-
arar, óperusöngvarar, blaðamenn,
sérfræðingar í sjúkrahúsum, dóm-
arar, málaflutningsmenn, lög-
reglumenn og fulltrúar í erlend-
um sendiráðum.
Ég vildi að afi minn gæti séð
allt þetta. Sjálfur kunni hann
bæði að lesa og skrifa og var
kennari í mörg ár. Ég heimsótti
hann oft og áleit hann einn vitr-
asta og bezta mann, sem nokkru
sinni hefði verið uppi.
Dag einn, skömmu áður en
hann dó, sagði hann við mig:
„Sonur, það þurfti yfirlýsingu
Lincolns forseta til að veita mér
frelsi. Ég vona að þú fáir aldrei
að vita hvernig það er áð lifa án
þess.“
Þetta sagði hann við mig — t
en ég er þess fullviss, að það var
einnig von hans, að enginn mað- |
ur í öllum heiminum þyrfti
nokkru sinni að lifa í ánauð,
ófrjáls og frelsi sviftur.