Úrval - 01.06.1963, Side 100
108
ÚRVAL
reyna að afla raunhæfra sann-
ana fyrir þvi, að frystingin stöðvi
framleiðslu magavökvanna.“
Eftir tveggja klukkustunda
hvíld, voru kverkar sjúklingsins
staðdeyföar (með úðun), og hann
var vafinn í rafhitað teppi, til
iþess að halda líkamshitanum
eðlilegum. Var'nú komið að þeim
eina þætti meðferðarinnar, sem
olli nokkrum óþægindum allra
snöggvast: örþunnum gúmbelg', i
laginu eins og maga og áföstum
við tvær grannar slöngur, hvora
innan í annari, var vafið saman,
unz hann var á við mannsfingur
að gildleika og síðan ýtt aftur i
kok sjúklingsins og honum sagt
að kyngja honum, ásamt slöng-
unum Eftir fáeinar tilraunir var
belgurinn kominn niður í maga.
Slöngurnar voru því næst
tengdar við' frystivél hjá rúmi
sjúklingsins. Vélin dældi nú
hrenu alkóholi (alcohol absolut-
us, kældu niður 1,4°F = -M7°
(i), gegnum innri slönguna niður
i gúmbelginn, sem við það þenst
út, og síðan út um ytri slönguna
aftur. Eftir fáar sekúndur er
slangan niður í belginn orðin
ísuð, og að fimm mínútum liðn-
um er magi sjúklingsins orðinn
gaddfreðinn.
Þessu fylgja engin óþægindi;
sjúklingurinn finnur ekkert til.
Alkóholinu var nú dælt í gegnum
belginn í nákvæmlega klukku-
tíma, þá var hann látinn þiðna i
stundarfjórðung og síðan tæmt
úr honum alkóholið og liann
tekinn upp, sem gekk fljótt og
vel. Og þar með var meðferð-
inni lokið.
Meiri hluti sjúklinganna hefur
þvi nær óseðjandi matarlyst á
eftir. En um það hil þriðjungi
þeirra finnst eins og þeir hafi
borðað yfir sig og hafa enga
matarlyst. Þeim er ráðlagt, að
borða lítið eitt af auðmeltri fæðu
en drekka mikið af mjólk, þar
til þessi fyllitilfinning hverfur,
sem í flestum tilvikum verður
mjög skyndilega innan fárra
daga. Smávegis aukakvilli, og
sýnilega meinlaus, sem stöku
sinnum hefur fylgt á eftir, er
svo nefnd „melena“ eða dökk
húð (stafar af svörtu litarefni í
blóðinu), en hefur einnig horfið
á fáum dögurn. Og þá er nú sjúk-
lingurinn loksins laus við allar
þær þjáningar, sem sárið olli
honum, engin skurðaðgerð og
fórn á miklum hluta magans
lengur yfirvofandi, og hann getur
gláður hyrjað nýtt líf og horðað
allan mat.
Þegar þetta er ritað, hafa 175
sjúklingar fengið þessa frysti-
meðferð við Háskólasjúkrahúsið
í Minnesota, og af þeim hefur
maginn i 58% alls enga sýru
framleitt nóttina eftir meðferðina.
í 20% til viðbótar var sýrufram-