Úrval - 01.06.1963, Síða 103
SKEIFUGARNARSÁR LÆKNAÐ . . .
111
frekara öryggis, setti Wagensteen
kuldastigið við -r- 17°C.
Fyrsta magafrystingin, sem
gerð var á manni við -j- 17 °C,
var framkvæmd í október 1961, í
15 mínútur. Árangurinn var góð-
ur, en skammvinnur. Endurfryst-
ing var nauðsynleg, og þá látin
standa yfir i 37 mínútur. „Við
vissum, að frystingin var hættu-
laus, en við vildum að sjálfsögðu
fara afar gætilega," segir dr.
Bernstein.
Enn varð að endurtaka fryst-
inguna, og í þetta sinn í 45 min.
Og svo loks í 60 mín. Síðan —
það var í maí 1962 —- hefur sjúk-
lingurinn ekki kennt sér meins.
Og aðrir, sem siðan hafa fengið
-f- 17 °C frystingu í eina klukku-
stund hafa hlotið jafn góðan
árangur.
Tíminn einn sker úr því, hvort
árangurinn af magafrystingu við
skeifugarnssár reynist varan-
legur, og hvort magafrysting gef-
ur sama árangur við sár 1 mag-
anum sjálfum. En það er full á-
stæða til að ætla, að aðgerðina
megi gera á sjúklingum utan
sjúkrahúss. Að á sérhverju sári i
skeifugörn, þar sem ekki er um
þrengsli i neðra magaopinu eða
aðra aukakvilla að ræða, megi fá
bót með aðeins klukkustundar
dvöl hjá lækni i lækningastofu
hans.
Sir Alexander Fleming, er fann upp penicilinið, tók við Nobels-
verðlaunum í læknisfræði í Stokkhólmi árið 1945. Þegar hann
tók á móti verðlaununum, var hann með slæmt kvef. Meðan á
athöfninni stóð, þurfti hann að nota vasaklútinn sinn æ ofan i æ.
Og hann var enn að sjúga upp í nefið, þegar hann fór. Augu hans
voru rauðleit, og það rann úr þeim. Einn af embættismönnunum
við athöfnina hristi höfuðið fullur samúðar og sagði við hann:
„Alveg gagnslaust við kvefi?“
E. E. Edgar.
Ellin freistast af gulli, æskan af skemmtunum, lítilmennið af
smjaðri, ragmennið af hræðslu og fullhuginn af frægðinni. Svona
er sin ögnin handa hverri fisktegund, og allt hylur það öngulinn
banvæna.