Úrval - 01.06.1963, Síða 121
Enn þann dag i dag verður öðru hverjn vart við
japanska hermenn i felum í afskekktum byggðarlögum
Indónesiu, Filippseyja og ýmissa eyja Kyrra-
hafsins. Þeir hafa svarið þess dýran eið að gefast
aldrei upp, enda virðast fæstir þeirra gera sér
grein fyrir því, að stríðinu er nú lokið fyrir löngu,
Öðrum finnst hermannaheiður sinn í veði,
og óttast þeir slæmar afleiðingar, ef þeir gæfust upp,
jafnvel að þeir yrðu drepnir tafarlaust.
Japanskir hermenn
enn í íelum
Eftir E. J. Kahn.
*
4
ANN 15. ágúst 1945,
þegar Hirohito Jap-
gfr ankeisari tilkynnti
_____&■ þegnum sínum, að
þeir hefðu tapað
heimsstyrjöldinni síðari, voru sex
og hálf milljón japanskra her-
nianna, sjómanna og borgaralegra
starfsmanna fjarri heimalandi
sinu, dreifðir um svæðið frá
hinum fjarlægu kóralrifjum
Kyrrahafsins til Suðaustur-Asíu,
Kína og Síberíu. Árið 1950 voru
þrjú hundruð sextíu og sjö þús-
und manns enn ókomnar til
heimalandsins.
Auk fanga í Sovétríkjunum og
Kína er hér um að ræða upp-
gjafahermenn sem nú stunda
landbúnaðarstörf á Java, una
betur lífi sínu þar en í Japan og
kusu heldur að verða kyrrir þar
sem þeir voru, þegar stríðinu
lauk. Aðrir eru menn, sem ekki
voru þess umkomnir að fara
heim, en fjölmennastur er j)ó hóp-
ur hermanna, sem af allt öðrum
ástæðum kom ekki heim fyrr en
löngu eftir að stríðinu var loikið.
Sumt voru rnenn sem leyndust
i frumskógum fjöimargra Kyrra-
hafseyjanna eftir að herdeildum
þeirar hafði verið tvistrað og
vissu ekki að striðinu var lokið,
— Men Only —
129