Úrval - 01.06.1963, Síða 127
JAPANSKIR HRRMENN ENN í FELUM
135
veikin tók sífelldan toll' og í
júní 19*51 voru fimm af níu
mönnunum dánir.
í júlí árið 1956 var myndað
formlegt stjórnmálasamband milli
Japan og Filippseyja og hinn
nýskipaði ambassador Japans á
Manila bað stjórn Filippseyja
að ná „strandaglópunum" úr
fjallafylgsnum sínum og afhenda
Japönum þá.
í>ann 24. október, þegar björg-
unarsveitin nálgaðist fjallið, varð
einn af „strandaglópunum“ á leið
hennar. Hann sagði þeim að biða
og hraðaði sér til félaga sinna
með bréfið frá japanska sendi-
herranum í hendinni.
Það var samþykkt að Yama-
moto færi til fundar við leitar-
mennina. Ef hann kæmi ekki aft-
ur að vörmu spori, væri það tákn
þess að hann hefði verið ginnt-
ur í gildru og skyldu þá menn
hans fremja sjálfsmorð.
Yamamoto — klæddur hinum
óíhreina og slitna liðsforingja-
frakka sínum gekk til móts við
leitarmennina og bauð þeim eft-
ir stuttar viðræður heim í kofann
sinn, þar sem gestirnir fengu
steikta kjúklinga og steikt svína-
kjöt að borða.
Fáum vikum siðar var Yama-
moto og menn hans komnir heim.
Við heimkomuna frétti Yama-
moto það, sér til undrunar, að
Hirco Onoda, liðsforinginn, sem
hann hafði orðið samferða til
Philippscyja fyrir tólf árum,
hefði síðar hlotið útbreidda og
óskiljanlega frægð.
Líf Hirco Onoda og félaga
hans á Lubang var allt öðruvísi.
Þeir lifðu eins og ofsótt dýr,
flakkandi frá einum staðnum til
annars og hirðandi allt — ban-
ana, kókoshnetur — sem að
hendi kom.
Á árunum milli 1951—53 báðu
Japanir hvað eftir annað yfir-
völd Filippseyja leyfis til að
leita að Onoda og félögum hans
á Lubang, en fengu ávallt synj-
un, þangað til árið 1954, að leit-
arflokbur fór í heimildarleysi til
eyjarinnar. iSú för hafði ekki
heppnina með sér. Þann 7. maí
s.á. rakst flokkur lögreglumanna,
sem var á eftirlitsferð um Lub-
ang, á þrjá Japani og það hófst
þegar skothríð. Einn Japani var
drepinn, en hinir tveir komust
undan.
Síðari hluta dags þann 27. jan-
úar 1959, fjórtán árum eftir land-
töku Onoda liðsforingja á Lubang,
voru nokkrir menn að höggva
við fyrir utan þorpið Calingog,
þegar hafin var allt í einu skot-
hrið á þá. Tveir menn voKi
drepnir og einn særðist.
Næsti leitarflokkur steig á land
á hvítum ströndum Lubang árla
í mai 1959, en einu merkin, sem