Úrval - 01.06.1963, Síða 131
UNDRAVERÐ LÆKNING
anum með okkur aftur í tímann
og lestu það sjálfur.
Svo skaltu líta fram í tímann,
til jólanna og allrar þeirrar ham-
ingju sem þau geta veitt. Þau eru
góður tími til að hafa ánægju af
börnum þínum og fjölskyldu. Öll
börn eru eftirtektarverð og óvið-
139
jafnanlegð sum einungis fremur
en önnur.
Garðyrkjumenn vinna á vet-
urna til þess að njóta ávaxta og
blóma á sumrin. Foreldrar eru
lánsamari, þeir geta notið barna
sinna árið um kring, en kannski
sérstaklega um jólin ...
Litla stúlkan, sem íékk að liía
Eftir Gabriel Fielding.
G þekkti barn, sem
var að deyja i júní.
Mér var skýrt frá
þessu, þegar ég kom
aftur heim úr sumar-
leyfinu og ég fór að vitja um
hana. Hún lá fyrir utan húsið
heima hjá sér í hjólastólnum, sem
var löngu orðinn of lítill fyrir
hana og sólargeislarnir léku um
andlit hennar og lokka.
Pauline hafði ekkert við mig
að segja þennan dag. Hún var
að eðlisfari fátölug, en í þetta
skipti venju fremur. Einhvern-
veginn hafði hún komizt að því,
að hún væri að deyja. Og hún
myndi ekki, eins og hún orðaði
það sjálf við mig, „verða hér á
jólunum.“
f þetta skipti hirti hún ekk-
ert um bros mitt, jafnvel þótt
hún sæi það. Spurningar mínar
um líðan hennar og systur henn-
ar o. fl. voru ekki virtar svars.
Ég stóð þarna i mestu vandræð-
um andspænis þögn hennar og
vissi ekki hvað ég ætti að segja
eða gera, áður en ég færi inn, til
að tala við móður hennar. Það var
á þessu augnabliki sem hún ákvað
að gera nokkuð það, sem lengi
mun geymast sem undarleg og
torskilin endurminning frá lækn-
isævi minni. í fyrsta skipti frá
því að ég steig út úr bilnum
mínum leit hún beint á mig. Svo
dró hún, jafn skyndilega og fugl
deplar auga, teppið, sem skýldi
líkama hennar, hátt upp fyrir
— Family Doctor —