Úrval - 01.06.1963, Síða 140
148
ÚR VAL
trúa því, að einkafjármagn geti
orðið mikilvægt.
En Nasser er fljótur að gera
það sem lionum fyrst dettur í
hug. Þegar hið nýja Arabalýð-
veldi hans fór út um þúfur og
Sýrland kaus að fara sínar eig-
in leiðir, varð uppi t'ótur og fit
i Cairo. Líklega færi eins fyrir
Egyptalandi og Sýrlandi, hugs-
aði Nasser. Þess vegna ákvað
hann skyndilega að stefna að
því að dreifa auðæfum Egypta-
lands að nýju og sveifst jjá ein-
skis.
Næstum á einni nóttu voru
einkahlutabréf sem skiptu sem
svarar þúsundum milljóna króna
tekin eignarnámi. Mörgum skrif-
stofum og verzlunum var lokað
með lögregluvaldi, m. a. hinni
stóru verzlun i Cairo, Cucurel.
Lögreglan fór jafnvel inn á
einkaheimili og hirti ]jar reiðu-
fé, teppi og skartgripi. Innan-
ríkisráðherrann, Zaharia Mohi-
eddine, sagði, að allt væri jjetta
gert „til þess að vernda ávinn-
inga byltingarinnar gegn gagn-
ráðstöfunum og samsæri heims-
veldissinna.“ Tugir manna voru
teknir höndum. Þessar ráðstaf-
anir skutu mörgum frómum
manninum skelk i bringu.
En bilið milli sósíalismans í
Egyptalandi og sósíalismans í
Rússlandi virðist enn breikka.
Enginn í Sovétríltjunum þyrði
að segja opinbcrlega, eins og
egypzk framákona fyrir
skemmstu, að verkamenn þjóð-
arinnar væru sviptir rétti sín-
um. Nasser hefur þjóðnýtt bank-
ana, en leyfir kauphöllinni í
Cairo að halda áfram rekstri.
Hann kaupir 40 MIG orrustuflug-
vélar frá Sovétrikjunum, en
sendir egypska kommúnista í
fangelsi. (Iíommúnistar eru ekki
hættulegir, segir hann, nema
þeir lúti skipunum að utan.)
Ilann hefur skipað nokkrum
egypzkum nemendum að koma
heim frá Moskvu, vegna þess
að Moskvumenn hafa reynt að
snúa þeim til „réttrar trúar“.
Erfitt er að gera sér fulla grein
fyrir stefnu Nassers. Líklega er
Nasser samt oftar á bandi Vest-
urveldanna en ekki, Bandarískir
sérfræðingar leiðbeina Egyptum
varðandi veiðigetu og mið;
bandarískir verktakar munu
taka að sér að reisa hina nýju
orkustöð i Cairo; annað banda-
riskt fyrirtæki mun byggja verk-
smiðju, sem framleiða mun lyf;
ítalir vinna að því <ið bora 25
af vatnsbrunnunum í Nýja dal;
egypzkir olíusérfræðingar eru
sendir til Bandaríkjanna, til
Bretlands og Hollands til að afla
sér kunnáttu og þekkingar.
Vestur-Þjóðverjar eiga ítök í Eg-
yptalandi og eru í ár að reisa
allmörg gistihús. Flestir þeir