Úrval - 01.06.1963, Síða 141
BARDAGI NASSERS . .
149
samningar, sem tengdir eru
fimm ára iðnvæðingaráætlun
Egypta eru gerðir við Vestur-
veldin, eða Vestur-Þýzkaland.
Flestir eru þeirrar skoðunar
á Vesturlöndum, að balda ætti
áfram tækniaðstoð, lánaveiting'-
um og styrkjum til Egyptalands.
Þótt okkur sé ekkert vel við
ýmislegt í hinu „sósíaliska" ríki
Nassers, stefnir Nasser þó að
marki, sem við ættum að láta
okkur varða. Því að ef áætlanir
og hugsjónir Nassers sigrast
ekki á offjölguninni, gæti farið
svo, að örvænting gripi um sig
og harðstjórar, sem Nasser
kemst ekki i hálfkvist við, kæm-
ust til valda.
Níl fellur til norðurs — i átt-
ina til Moskvu. Við verðum að
forða því að hún nái þangað
nokkurn tíma.
VIÐVÖRUNARTÆKI GEGN BlLAÞJÓFUM.
Nýtt varnartæki á bifreiðir og önnur farartæki hlaut nýlega
verðlaun i samkeppni á vegum brezka sjónvarpsins.
Tæki, sem gefur viðvörunarmerki, ef tilraun er gerð til að
ræsa bifreiðina, opna dyr hennar o. þ. h.
Tækinu má koma þannig fyrir, að það verndi t. d. dyr bifreið-
arinnar eða hlass hennar, ef um flutningavagn er að ræða. Sér-
hver tilraun til afskipta af hinu verndaða svæði kemur þá af
stað skerandi viðvörunarhljóði.
Stillingin er á einföldu stjórntæki, sem komið er fyrir neðan
við mælaborðið. Það er útbúið með rofa og tveimur tökkum, og
má færa hvorn þeirra í tólf stillingar. Sautján hundruð mismun-
andi samstillingar eða fléttur eru mögulegar með þessum tveim-
ur tökkum, og hafa þeir vald á neistanum, svo að ekki er unnt
að ræsa bifreiðina nema þeir hafi verið feerðir í rétta stöðu. Ef
tilraun er gerð til að ræsa bifreiðina í annarri stöðu, hljómar
viðvörunarmerkið samstundis.
Til að gera farkostinn óhreyfanlegan þarf því ekki annað en
dreifa úr stillingu takkanna. Ekki er þörf á lykli eða rofa til
endurstillingar.
Eigandinn fær í hendur einfalt tæki til að breyta stillifléttun-
um eða gera tækið óvirkt, t. d. þegar vagninn er skilinn eftir til
viðgerðar á verkstæði.