Úrval - 01.06.1963, Side 151
SNINNINGURINN MEÐ BARNSHJARTAÐ
159
ekki eru nógu gamlir enn til
að fara á kreik.“
Ekki síður einstök voru fyrstu
kynni Genéral Electric-féiags-
af honum. Þetta fyrirtæki var
stofnað þremur árum eftir komu
hans til Ameriku og var fyrir-
fram ákveðið i því, að ráða til
sin aiia skörpustu lieila iðnað-
arins. Starfsmenn þess höfðu
heyrt af hinum unga stærðfræð-
ing hjá Eickemeyer, og E. W.
Rice (síðar forstjóri fyrirtækis-
ins), var falið að ganga úr
skugga um, hvort æskilegt væri
að ráða hann.
„Ég gleymi því aldrei, þegar
ég kom til hans í fyrsta sinn,“
sagði Rice síðar. „Mér kross-
brá, þegar ég sá þennan litla,
veikbyggða líkama með stóra
höfuðið, hár niður á herðar,
klæddan gömlu prjónavesti, með
vindil í munni og sitjandi með
krosslagða fætur uppi á borði.
En vonbrigði mín vöruðu aðeins
andartak og gufuðu algerlega
upp um leið og hann tók að
tala.
„Ég fann þegar i stað hinn
undarlega kraft i hvössum en
góðlegum augum hans. Eld-
móður hans og alvara, hin
skarpa dómgreind hans og
furðulega þekking á vandamál-
um vélfræðinnar, sannfærði mig
um, að þennan mann, yrðum
við að ná í. Það þurfti enga
spádómsgáfu til að sjá, að hér
var mikilmenni, sem talaði i
krafti nákvæmrar og djúpsettr-
ar þekkingar, og sem mundi
verða iðnaði vorum til stór-
kostlegs framdráttar, ef honum
væri veitt aðstaða og tækifæri
til þess.
Samkvæmt tillögum Rice
bauð General Electric Steinmetz
atvinnu ásamt stórkostlega
bættri aðstöðu til rannsókna. I
fyrstu tók hann þessu fegins
hendi, en viku siðar tilkypnti
liann, að sér þætti mjög leitt,
að hann gæti ekki tekið boðinu.
„En hvers vegna?“ spurði
Rice. „Fyrir viku síðan voruð
þér fús til þess.“
„Herra Eickemeyer vill ekki
að ég fari,“ sagði Steinmetz
blátt áfram.
„En sjáið þér til Steinmetz,
við erum fúsir til að gera kaup
við yður. Við hækkum fyrra boð
okkar — ja, um önnur tvö þús-
und?“
„Peningar koma ekkert jiessu
máli við. Þótt þér byðuð mér
tífalt meira, mundi það engu
breyta. Hr. Eickemeyer veitti
mér atvinnu, þegar mér reið
mest á. Ef hann þarf mín með
núna, er það skylda mín, að
vera kyrr hjá honum. Mér þyk-
ir það leitt, en þessu verður
ekki breytt.“
Rice gafst ekki upp við svo