Úrval - 01.06.1963, Side 164
172
ÚR VAL
spurður hvers vegna, sagði
hann, að það væri af því, að
þá væri ekkert eftir þar, sem
eldingu gæti slegið niður í.“
En menntunin var Steinmetz
alvörumál og hann kom því
loks til leiðar, að fáeinir stúd-
entar, sem framúr sköruðu,
fengu að nota hina enstöku að-
stöðu og fjölbreyttu hjálpar-
gögn hjá General Electric til
þess að þjálfa sig. Þetta komst
í kring vegna hinnar miklu út-
þensiu félagsins. 1910 voru að-
stoðar- og framleiðsludeildirn-
ar, sem hver um sig fékkst við
sitt sérstaka verkefni, orðnar
svo margar, að Steinmetz kom
á fót sérstakri deild, sem átti að
veita honum öllum góð ráð og
aðstoð. Til þessarar deildar var
svo mikið leitað, að til þeirra
rannsókna, sem hún þurfti að
leysa af hendi, nægði hvergi
nærri rannsóknarstofa Stein-
metz, og varð að taka alla efztu
hæðina í einni hinna nýju
bygginga Gereral Electric til
þeirra.
Hið mikla orð, sem fór af
Steinmetz, dró að þessari nýju
deild nokkra af beztu vísinda-
mönnum Ameríku, og með hin-
um stóraukna útbúnaði og
starfsliði, sem hann nú hafði
tiltækt, sá hann sér leik á borði
að veita efnilegum, ungum
mönnum bæði munnlega og
verklega kennslu og æfingu.
Hann kom á fót framhaldsnám-
skeiði fyrir stúdenta, og lét ný-
bakaða vélaverkfræðinga fást
við sum af þeim verkefnum,
sem unnið var að á rannsóknar-
stofu hans. Fjöldi þeirra, sem
þátt töku í námskeiðinu var
takmarkaður við 12, en með ár-
unum fengu margir ágætir vís-
indamenn þjálfun og þroska
þar.
NÚTÍMA JÚPÍTER.
Eitt erfitt verkefni, sem Stein-
metz fékkst við hjá General
Electric, var hinn mikli óvinur
orkutækninnar, eldingin. Þessi
óvinur bræddi orkuleiðslurnar,
brenndi sundur spennana og
komst alla leið inn í rafalana
og ónýtti þá. í hverju þrumu-
veðri varð einhvers staðar
straumrof, oft dögum saman.
Hvernig gátu orkuveitur tek-
ið við þessu skyndilega og ofsa-
lega rafmagnsaðstreymi frá
skýjunum? Mestum erfiðleikum
olli það, hve eldingin er skamm-
vinn og allar tilraunir með hana
því nær óframkvæmanlegar.
Steinmetz reyndi að reisa turn á
hæð einni, sem á umliðnum ár-
um hafðí iðuiega orðið fyrir
eldingum. Hann kom fyrir í
turninum alls konar mælitækj-
um og áhöldum og hafði vís-
indamenn á verði allan sólar-