Úrval - 01.06.1963, Side 172
180
Ú R VA L
anlegum óvinum sinum um fágæt
hernaðarleg efni.
Teiknarar Hindenburgs skildu
hættuna. Eins konar reykháfur
leiddi það hydrogen sem út kynni
að síast, út úr flugfarinu. Sjá
mátti eftirlitsmenn í tölulausum
asbest-fötum, með flókasólaða
skó á fótum, athuga þessa „reyk-
háfa“ mjög vandlega. Þeir athug-
uðu líka gasldefana með engu
minni nákvæmni.
Þegar gengið var aftur í flug-
farið, fram hjá ibúðum yfirmann-
anna, kom maður í stjórnarklef-
ann. Yeggir hans voru úr gleri,
hann sjálfur rúmgóður og minnti
að mörgu leyti á stjórnpall á
skipi.
Það þurft aðt’ins tvo menn til
að stjórna loftfari. Stýrimaður-
inn sem snéri fram, hélt því á
réttu horfi með hinu tröllaukna
stýrishjóli sinu. Lyftumaðurinn
snéri andlitinu til hliðar og fylgd-
ist með hallamæli og hæðar-
mæli, til þess að halda því i réttri
hæð.
Fyrir aftan stjórnklefann var
svo farþegarúmið. Á Hindenburg
voru tvö þilför. Á A-þilfarinu var
farþegunum ætlað rúm til
skemmtigöngu. Þar voru á báðar
hliðar breiðir, skásettir gluggar,
jafnframt setustofa og borðsalur.
Frá A-þilfarinu lá mjór gangur
til hinna 25 farþegaklefa. í
hverjum klefa voru tvær svefn-
kojur, hægindastóll, mundlaug,
baðker, spegill og' rafljós.
Það mátti jafnvel reykja í þessu
loftfari. Barinn var lokaður með
tvöfaldri hurð, sem þjónn lauk
upp, þegar maður hringdi bjöll-
unni. Þar var loftþrýstingnum
haldið lítið eitt hærri en annars-
staðar í farinu, svo að eklci væri
hugsanlegt að nokkur minnsta
hydrogen-gufa gæti síast þang-
að inn.
Langaði mann að fá sér bað,
varð hann að fara niður á B-þil-
far þar sem baðið var, en það
varð að fara sparlega með vatnið,
vegna þess að það var þungt til
flutnings. Hvarvetna var allt
miðað við það að hafa allt sem
léttast. Hvert auka pund táknaði
13 teningsfetum meira af hydro-
gen. Maður gat lyft hverjum stól
með einum fingri og slaghörp-
unni, sein búin var til úr alúmin-
íum, með báðum höndum. Skil-
réimin, jafnvel veggir stjórnklef-
ans, voru úr striga. Það var eins
og að búa í marghólfuðu tjaldi.
Fyrir aftan farþegarými voru
tveir þriðju hlutar hins mikla
loftfars, eitt stórt og 14 minni
farmrými, 24 geymslurúm fyrir
verkfæri og birgðir loftfarsins,
15 vatnsgeymar og 64 smálestir
af eldsneyti.
Hámarkshraði Hindenburgs var
84 hnútar, ekki mikið minni en