Úrval - 01.06.1963, Síða 174
182
ÚR VAL
(hið gamla L-72) á leið sinni til
Afríku. Hið eina sem fanst úr því,
var lík skipstjórans, du Plessis
de Grenedan, yfirforingja, sem
fiskimenn drógu upp úr djúpum
Miðjarðarhafsins.
Árið 1925 brotnaði Shenandoah,
hin ameríska eftirliking á þýzka
loftfarinu L-49, i kastvindi yfir
Ohio og fórust með þvi 14 menn.
Árið 1930 rakst R-101, stolt
Bretlands, á fjallshlíð við Beau-
vais i Frakklandi og fórust 47
manns.
Árið 1935 braut Macon á sér
afturendann og hrapaði niður í
Kyrrahafið. Tveir menn fórust.
í Friedrichshafen hafði hins
vegar allt gengið vel. Haustið
1928 hóf Graf Zeppelin flutninga-
þjónustu. Árið 1930 byrjaði það
ferðir sínar til Suður-Ameriku og
1936 hafði það flutt 13000 far-
þegja í 575 slysalausum ferðmn.
Samt urðu áhafnirnar ótrúlega
gálausar. Þeir stálust til að
kveikja sér í sígaerttum hvar sem
var, jafnvel bakvið fulla hydro-
gengeyma. Á einni ferð frá Suð-
ur-Ameríku földu loftfarsmenn
apa í loftfarinu. Aparnir sluppu
lausir og sveifluðu sér masandi
og gargandi milli bitanna, þangað
til loftfarið lenti. í annað skipti
Klippið hér
----------------------------------------------------------------->
Hefur þú þörf fyrir 2 þúsund króna aukatekjur
í næsta mánuði?
Sendist Öskari Karlssyni, ÚRVAL, Box 57, Reykjavík.
Vinsamlegast sendið mér nauðsynleg gögn, sem innihalda
reyndar aðferðir og einfaldar upplýsingar, mér nauðsynlegar
til að afla mér aukatekna með því að taka á móti áskriftar-
pöntunum fyrir ÚRVAL. — Ef ég, eftir að hafa íhugað málið,
hef ekki áhuga á þessu, get ég einfaldlega gleymt þessu og er
ekki skuldbundinn til að nota eða endursenda gögnin.
Nafn: ....................................................
Heimilisfang: ............................................
V________________________________________________________________