Úrval - 01.04.1969, Blaðsíða 65

Úrval - 01.04.1969, Blaðsíða 65
BROSTNAR FRAMAVONIR 63 önnur lönd, og þá einkanlega svo- kölluð velferðarríki hér á Vestur- löndum, eiga við sama vandamál að glíma. Það var þess vegna ekki eingöngu með hag Ameríku í huga, sem háskólinn í Michigan hóf rann- sókn í þessum efnum fyrir nokkr- um árum. Rannsóknin var sumpart lík hinni frægu rannsókn Kinseys á kynlífi Bandaríkjamanna og áhrif- um þess á líf þeirra. í þrjú ár var safnað samtölum við 2500 fullorðna menn og konur um andlega heilbrigði þeirra, sál- ræna erfiðleika og fleira í þeim dúr. Þeir sem rætt var við voru valdir eftir venjulegum aðferðum, þegar rannsóknir af þessu tagi eru gerðar. Takmarkið var að fá menn úr sem flestum stéttum, þannig að út kæmi sem réttust mynd af bandarísku þjóðfélagi. Niðurstöð- urnar urðu mjög athyglisverðar og vöktu marga til umhugsunar. Það hefur lengi verið vitað, að nútímamaðurinn á ekki auðvelt með að varðveita innra jafnvægi sitt í hinu tækniþróaða þjóðfélagi. Vaxandi notkun á taugameðölum og langir biðlistar hjá taugalækn- um tala sínu máli. Samt kemur það á óvart, að næstum fjórði hver Bandaríkjamaður hefur að minnsta kosti einu sinni á ævinni fengið taugaáfall eða líkamlegan sjúkdóm, sem stafaði af sálrænum orsökum. Ameríkanar eru hvattir til að leita til sérfræðinga, ef þeir eiga við vandamál að stríða, sem þeim er um megn að leysa, og gera það óspart. Næstum helmingur fullorð- inna Bandaríkjamanna hafa minnst einu sinni á ævinni haft ástæðu til að leita sér hjálpar hjá taugalækni, sálfræðingi, presti, hjónabands- fræðslustofnun eða einhverju þess háttar. Rannsóknin leiddi þó í ljós nokkr- ar aðrar orsakir þessara vandræða en almennt var álitið. Því er oft haldið fram, að öryggisleysi okkar tíma, ótti við atómsprengju og nýja heimsstyrjöld, raski innri ró fólks. En þannig er þessu ekki varið. Astandið í heimsmálunum hefur miklu minni áhrif á fólk en einka- líf þess. Það sem veldur vandræð- um er beinlínis ótti við að geta ekki staðið við skuldbindingar á sviði fjármála, ótti við uppsögn atvinnu og atvinnuleysi, hin harða og mis- kunnarlausa samkeppni og síðast en ekki sízt þunglyndi vegna brostinna framavona. Það er takmark í lífs- skoðun Bandaríkjamanna að kom- ast áfram í lífinu eins og það er kallað, sérstaklega á sviði fjármála, en aðeins mjög fáum tekst það í rauninni, eins og gefur að skilja. Þegar þessi staðreynd rennur upp fyrir fólki, fyllist það þunglyndi og vonbrigðum, sem oft leiðir til tauga- áfalls. Það er athyglisvert, að þetta er einnig alvarlegt vandamál hjá kvenfólkinu. Sú skoðun, að von- brigði á sviði kynlífsins sé megin- orsök óhamingju og taugaveiklunar hjá kvenfólki, fær ekki staðizt sam- kvæmt þessari rannsókn. Fyrst og fremst er orsökin sár vonbrigði vegna brostinna framavona eigin- mannsins. f byrjun hjónabandsins eru þær fullar af ást og trú á eigin- manninum og sannfærðar um, að hann muni komast hátt í metorða-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.