Úrval - 01.06.1970, Side 54
52
ÚRVAL
en hefur nám í náttúrufræði. Má
og vera, að honum hafi fljótlega
fallið betur þær greinar, þar sem
þekkingar á náttúrufræði er leitað,
en hinar, sem eingöngu hagnýta
hana. Og veðurfræðin hefir honum
snemma verið, hugstæð, því að í
janúar 1919 sendir hann Skírni
grein um „Veðurfræðistöð á ís-
landi“, þar sem gerð er grein fyrir
þekkingu manna í veðurfræði um
þær mundir, lýst starfsemi dönsku
veðurstofunnar og bent á, hvert
gagn geti orðið að starfi samsvar-
andi stofnunar á íslandi. En lík-
lega hafa honum borizt fréttir um
svipað leyti, er ollu því, að hann
sneri baki við Kaupmannahöfn.
f Bergen hafði fáum árum fyrr
hafizt einn merkilegasti og sér-
kennilegasti kaflinn í sögu veður-
fræðinnar. Maður er nefndur Vil-
helm Bjerknes, prófessor í eðlis-
fræði við Oslóarháskóla. Hann hafði
um allmörg ár fengizt við ýmis
vandamál vökvaaflfræðinnar, og
komizt á þá skoðun, að gerlegt væri
að segja fyrir um veður fram í tím-
ann, með því að nota lögmál afl-
fræðinnar. Og Bjerknes gerði meira,
hann benti einnig á, hvaða kenni-
setningar ætti að nota, hvernig ætti
að beita þeim, og hvað stærðfræði-
búning þyrfti að veita þeim til að
gera þær nothæfar. Fræði sín hafði
Bjerknes kynnt mönnum víða um
lönd, einnig vestanhafs, og orðið vel
þekktur fyrir. Árið 1913 bauðst
honum mjög góð fræðimannsstaða
í Leipzig, og flutti hann þangað
ásamt tveimur ungum aðstoðar-
mönnum sínum norskum, sem síð-
ar urðu þekktir vísindamenn. Vís-
indstofnunin í Leipzig fór mjög vel
af stað undir stjórn Bjerknes, en
stríðið varð henni ofurefli. Hún
veslaðist upp, og árið, 1917 hvarf
Bjerknes heim til Noregs aftur,
ekki til síns fyrra starfs í Osló,
heldur að nýstofnuðu prófessorsem-
bætti í Bergen. Vera má, að hinum
fræga manni hafi fundizt hann vera
kominn í hálfgerða útlegð í heima-
landi sínu, en hafi svo verið, lét
hann það ekki á sig fá, heldur tók
ótrauður til starfa. Auk kennara-
starfanna skipulagði hann veður-
þjónustu fyrir Vestur-Noreg, og
fjölgaði veðurstöðvum þar að mikl-
um mun. Hér fékk hann og sam-
starfsmenn hans tækifæri til að
prófa kenningar sínar gamlar og
nýjar, reyna við aðstæður veruleik-
ans, hvaða gagn þær gátu gert al-
þjóð. Árangurinn varð slíkur, að
stofnunin varð víðfræg á fáum ár-
um, og' til hennar streymdu veður-
fræðingar víðs vegar að, bæði vel-
þekktir fræðimenn, sem vildu
kynna sér hinar nýju aðferðir, en
þó ekki síður ungir menn og
óþekktir, sem fundu, að þarna var
eitthvað nýtt á ferðinni, og vildu
bæði læra hið nýja og taka þátt í
framförunum. Og enginn mun hafa
farið þangað erindisleysu, meðal
stúdenta frá Bergen á þessum ár-
um er að finna flesta þá menn, sem
fremst hafa staðið á sviði veður-
fræðinnar á áratugnum frá 1920 til
1950.
Líklegt verður að telja, að Jón
hafi frétt til Hafnar um hin nýju
vísindi í Noregi. Nokkuð er víst,
hann yfirgaf háskólann þar og hélt
til Noregs árið 1919 til náms í Osló,