Úrval - 01.06.1970, Qupperneq 54

Úrval - 01.06.1970, Qupperneq 54
52 ÚRVAL en hefur nám í náttúrufræði. Má og vera, að honum hafi fljótlega fallið betur þær greinar, þar sem þekkingar á náttúrufræði er leitað, en hinar, sem eingöngu hagnýta hana. Og veðurfræðin hefir honum snemma verið, hugstæð, því að í janúar 1919 sendir hann Skírni grein um „Veðurfræðistöð á ís- landi“, þar sem gerð er grein fyrir þekkingu manna í veðurfræði um þær mundir, lýst starfsemi dönsku veðurstofunnar og bent á, hvert gagn geti orðið að starfi samsvar- andi stofnunar á íslandi. En lík- lega hafa honum borizt fréttir um svipað leyti, er ollu því, að hann sneri baki við Kaupmannahöfn. f Bergen hafði fáum árum fyrr hafizt einn merkilegasti og sér- kennilegasti kaflinn í sögu veður- fræðinnar. Maður er nefndur Vil- helm Bjerknes, prófessor í eðlis- fræði við Oslóarháskóla. Hann hafði um allmörg ár fengizt við ýmis vandamál vökvaaflfræðinnar, og komizt á þá skoðun, að gerlegt væri að segja fyrir um veður fram í tím- ann, með því að nota lögmál afl- fræðinnar. Og Bjerknes gerði meira, hann benti einnig á, hvaða kenni- setningar ætti að nota, hvernig ætti að beita þeim, og hvað stærðfræði- búning þyrfti að veita þeim til að gera þær nothæfar. Fræði sín hafði Bjerknes kynnt mönnum víða um lönd, einnig vestanhafs, og orðið vel þekktur fyrir. Árið 1913 bauðst honum mjög góð fræðimannsstaða í Leipzig, og flutti hann þangað ásamt tveimur ungum aðstoðar- mönnum sínum norskum, sem síð- ar urðu þekktir vísindamenn. Vís- indstofnunin í Leipzig fór mjög vel af stað undir stjórn Bjerknes, en stríðið varð henni ofurefli. Hún veslaðist upp, og árið, 1917 hvarf Bjerknes heim til Noregs aftur, ekki til síns fyrra starfs í Osló, heldur að nýstofnuðu prófessorsem- bætti í Bergen. Vera má, að hinum fræga manni hafi fundizt hann vera kominn í hálfgerða útlegð í heima- landi sínu, en hafi svo verið, lét hann það ekki á sig fá, heldur tók ótrauður til starfa. Auk kennara- starfanna skipulagði hann veður- þjónustu fyrir Vestur-Noreg, og fjölgaði veðurstöðvum þar að mikl- um mun. Hér fékk hann og sam- starfsmenn hans tækifæri til að prófa kenningar sínar gamlar og nýjar, reyna við aðstæður veruleik- ans, hvaða gagn þær gátu gert al- þjóð. Árangurinn varð slíkur, að stofnunin varð víðfræg á fáum ár- um, og' til hennar streymdu veður- fræðingar víðs vegar að, bæði vel- þekktir fræðimenn, sem vildu kynna sér hinar nýju aðferðir, en þó ekki síður ungir menn og óþekktir, sem fundu, að þarna var eitthvað nýtt á ferðinni, og vildu bæði læra hið nýja og taka þátt í framförunum. Og enginn mun hafa farið þangað erindisleysu, meðal stúdenta frá Bergen á þessum ár- um er að finna flesta þá menn, sem fremst hafa staðið á sviði veður- fræðinnar á áratugnum frá 1920 til 1950. Líklegt verður að telja, að Jón hafi frétt til Hafnar um hin nýju vísindi í Noregi. Nokkuð er víst, hann yfirgaf háskólann þar og hélt til Noregs árið 1919 til náms í Osló,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.