Úrval - 01.08.1974, Page 12
10
ÚRVAL
baki fyrir sjónum almennings. Tök-
um dæmi:
LAUNUNG.
f fyrra óskaði tímarit um sjúkra-
húsbyggingar, að mega birta afrit
af umsjónar- eða yfirlitsskýrslum,
sem félagsmálaráðuneytið hefði
gert og hannað af sjúkrunarheim-
ilum í Washington, þar sem tekið
yrði á móti sjúklingum til hjúkrun-
ar. Svar ráðuneytisins var ákveð-
ið „nei“. Þar eð birting skýrsln-
anna mundi skerða trúnaðargildi
skjalanna.
LYGI.
Þegar fjöldi borgara óskaði eftir
að sjá kvörtunarbréf yfir flugþjón-
ustu, sem Civil Acronautics Board
hefði fengið frá almenningi neitaði
CAB því algjörlega. Höfundar gætu
orðið tilefni alls konar ofsókna frá
flugþjónustunni, sagði ráðuneytið.
En þegar málið var athugað nánar,
kom í ljós, að fyrirskipun frá CAB
var sú, að afhenda öll kvörtunar-
bréf til flugþjónustunnar, án þess
að dylja nöfn og heimilisfang höf-
undanna.
VIÐSKIPTALEYNDARMÁL.
Síðastliðið ás óskuðu nevtenda-
samtök eftir því, að fæðu- og lyfja-
málaráðuneytið gæfi opinbera
skýrslu um rannsóknir, um áhrif
efnis skammstafað MGA á mýs, en
því er blandað í fóður nautgripa,
en grunur um, að það geti valdið
krabbameini. Ráðuneytið synjaði
birtingar á þeim forsendum, að
þetta væri viðskiptaleyndarmál,
þar eð athugun þessi hafi verið
framkvæmd af iðnaðardeild þess-
arar stjórnardeildar.
TAFIR — SEINAGANGUR.
Árið 1970, þegar stjórn Nixons
var að neyða þingið til að fallast
á fjárveitingu stjórnarinnar um
flutninga- og samgöngufrumvarp,
heimtuðu stjórnarandstæðingar, að
endurskipulögð væri rannsókn, sem
þekkt var undir nafninu Garwin
skýrslan, og hafði verið stofnuð
árið 1969 af vísinda- og tæknistofn-
uninni, að frumkvæði forsetans.
En þar eð þessi skýrsla var hugs-
uð sem algjörlega á vegum sér-
fræðinga og þeirra forystumönn-
um á sviði efnahagsmála og hugs-
anlegra áhrifa umhverfis á hverj-
um stað, krafðist stjórnarandstað-
an að hún væri gerð opinber. En
yfirstjóðrnin neitaði. Það var ekki
fyrri en eftir samþykkt efri deild-
ar þingsins, að skýrslan var birt,
og þá kom í ljós, að ráðgefandi
nefnd sérfræðinga hafði talið fram-
kvæmdina mjög óhagkvæma, ó-
holla og hættulega og hafði því
talið sjálfsagt að hætta við hana.
Enn þá var svo komið — 17 mán-
uðum eftir frumkröfunna — að
þessar upplýsingnar voru einnskis-
virði, þar eð þær komu fimm mán-
uðum eftir að þingið hafði reynd-
ar fellt frumvarpið.
RÉ'TTUR BORGARANNA.
Þessi tilfelli eru eingöngu sem
dæmi, í stóru og smáu hefur þetta
launungaræði skapað það, sem
mætti með örlitlum ýkjum kallast: