Goðasteinn - 01.12.1964, Page 6

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 6
Skömmu fyrir síðustu aldamót rak mikið af plönkum á allar fjörur hér í sýslunni, og þá notaði sr. Bjarni tækifærið og byggði húsið. Öll grind þess er úr rekaviði. Sr. Bjarni kom nokkrum sinnum í Höfðann og var aufúsugestur, stór og fríður og höfð- inglegur. Aldrei gleymi ég því, þegar Sverrir bóndi í Hraunbæ kom einu sinni í Höfðann. Það var skömmu eftir sumarmál, í góðu veðri. Hann var óvenjulega klæddur, svo langt að kominn, að- eins í einum buxum úr hvítu vaðmáli en meira búinn um bol. Sverrir sagðist hafa farið snemma að heiman um morguninn og gengið fram á Mela til að gá að fénu sínu, sem hann hafði þá sleppt af gjöf. Því var hann svo létt klæddur. Svo þegar hann hafði gætt að, hvernig blessaðar kindurnar höfðu það þarna í mellandinu, þá blasti við honum þverhníptur hamraveggur Höfðans frá svonefndri Melöldu. Sverrir sagði, að sér hefði sýnzt svo stutt þangað, að hann hefði afráðið að skreppa vestur yfir sandinn til að hitta fólkið í Höfðanum. Hann var ekki að telja eftir sér sporin karlinn sá; það var þó næstum tveggja tíma gangur af Melöldunni heim að bæ í Höfðanum. En fyrst ég nú minntist á Sverri, ætla ég líka að geta um aðra enn minnilegri komu hans í Höfðann. Daginn fyrir skírdag 1901 var hart frost og norðan stormur. Sandurinn fauk, og sand- móðan var svo mikil, að lítið sá til Mýrdalsfjallanna. Um miðjan dag kom Sverrir, og þótti furðulegt, að nokkur skyldi vera á ferð í svo slæmu veðri. Ég man vel eftir, að Sverrir var nálega óþekkjanlegur, þegar hann kom í bæinn, svo var andlitið svart af sandi. Sverrir sagðist hafa lagt af stað um morguninn frá Vík með sveitungum sínum, Jóni bónda í Skálmarbæ og Þor- steini bónda á Eystri-Herjólfsstöðum. Þeir áðu í Skiphelli, en þar sagðist Sverrir hafa riðið frá þeim og strax tekið þá ákvörðun að leggja ekki á sandinn heldur reyna að komast fram í Höfða, sem og tókst. Hann sagðist alltaf öðru hverju hafa séð hæstu hnúka Höfðans upp úr sandkófinu og því getað haldið réttri stefnu. Enginn veit, hvers vegna Sverrir skildi við félaga sína. En af tvíræðum orðum hans þóttist móðir mín skilja, að þeir félagar hefðu orðið ósáttir þarna í hellinum um, hvort halda 4 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.