Goðasteinn - 01.12.1964, Side 14
þökin vatnsheld, eins og var á útihúsum í Mýrdalnum. I stað
hennar notuðu Álftveringar melstangir. Þær voru bundnar í
knippi, sem var raðað á raftinn svo haglega, að vatnið rann
eftir melstöngunum og út af veggjunum, en yfir melstangirnar
var tyrft með torfi. Ekki var til íbúðar nema ein baðstofa, en
hún var allstór og þiljuð innan. Mörgum árum síðar byggði
ísleifur timburhús.
I vesturbænum á Jórvík bjó þá Böðvar Þorláksson, Benedikts-
sonar skálda. Böðvar var kvæntur Hildi Runólfsdóttur, og var
hann seinni maður hennar. Þau áttu ekki börn, en börn Hildar
af fyrra hjónabandi voru fjögur. Eitt þeirra var Kristján, scm
fyrr er nefndur, tvær dætur, Þórunn og Guðlaug, og Símon,
sem þá var á aldur við drengina í austurbænum. Hin voru
uppkomin. Böðvar hafði mikinn og góðan vinnukraft, því öll
voru þessi systkini mjög dugleg. Heyskapur var mikill hjá hon-
um og búið nokkuð stórt. Var Böðvar vel efnaður. Þeir ísleifur
og Böðvar fyrntu hey á hverju vori og hjálpuðu oft öðrum, sem
komust í heyþrot. Haft var það eftir einum nágranna þeirra að
hausti: „Ég sker ekki meira, þó heyið sé lítið, nóg er heyið á
Jórvík“. Mjög skammt er á milli Jórvíkurbæjanna, og var sam-
komulag heimilanna einkar gott, aldrei deilur en ágæt samvinna.
Margt ungt fólk var í Álftaveri um þessar mundir. Þar var
þá starfandi ungmennafélag. íþróttaáhugi var allmikill, og æfðu
piltar mest sund og glímur. Mjög fljótt eftir aldamótin var þar
stofnað félag Templara (stúka) og starfaði mörg ár til gagns
og gleði fyrir félagana. Með þeim félagsskap var dans fyrst
innleiddur í sveitina, og var oftast dansað eftir að fundum lauk.
Stúkan var um tímabil fjölmenn.
Þegar hér var komið sögu, voru á nokkrum bæjum aðrir
bændur en um aldamótin, þeir eldri ýmist fluttir burtu eða
dánir. Að Mýrum var kominn ungur bóndi, Bergur Bergsson.
Hann var með afbrigðum duglegur og búskapur hans í miklum
uppgangi, en hann dó nokkrum árum síðar, drukknaði í Kúða-
fljóti 1918. í Holti var cnn þríbýli. Bændurnir voru þessir: Jón
Sverrisson, sem nú dvelur háaldraður á Hrafnistu, Bárður Páls-
son og Helgi Brynjólfsson. Allir áttu þeir mörg börn. Var talað
12
Goðasteinn