Goðasteinn - 01.12.1964, Page 21

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 21
]ón R. Hjálmarsson: Orrustan um England 1066 Öldum saman hafa Englendingar verið herrar hafsins, og styrkur veldis þcirra hefur að miklu leyti byggzt á þeirri stað- reynd, að landið var sævi girt á alla vegu, eftir að konungum Englands hafði tekizt að ná yfirráðum bæði í Wales og Skot- landi. Englendingar gerðust snemma mildir sjófarendur og eign- uðust með tímanum öflugri flota en nokkuð annað land jarð- arinnar. Hélzt svo um langt skeið, þótt nú sé allt gjörbreytt frá þvi sem áður var, því að mjög hefur hallað á Breta gagnvart öðrum stórveldum hin síðari ár. Ot í þá þróun skal ekki farið hér, heldur litið um öxl. Kemur þá í ljós, að um nærfellt níu alda skeið, hefur engri óvinaþjóð heppnazt að gera innrás í England og leggja það undir sig. Gildir þar einu hvaða stór- höfðingjar hafa átt hlut að máli, hvort það var Filippus 2. Spánarkonungur, Napóleon mikli Frakklandskeisari eða Adolf Hitler einvaldur Þýzkalands. Það var árið 1066, sem eyþjóðin varð í síðasta sinn að lúta í lægra haldi, er Vilhjálmur hertogi í Normandie gerði innrás sína og vann allt England eftir hina sögufrægu orrustu við Hastings. í fornöld og fram eftir miðöldum var þetta allt öðru vísi. Þá var England fámennt, klofið í mörg smáríki og átti ekki flota, sem hverju eyríki er brýn nauðsyn. Oft var því fátt um viðnám og varnir, þegar óvinaflota bar að landi. Þangað sigldi Júlíus Cæsar, án þess að mæta verulegri andstöðu, á árunum 54 og 55 f. Kr., er hann fór í leiðangra á hendur Bretum til að refsa þeim fyrir að hjálpa keltneskum frændum sínum í Gallíu, sem Cæsar var þá að brjóta undir veldi Rómverja. Cæsar hvarf fljótlega Goðasteinn 19

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.