Goðasteinn - 01.12.1964, Síða 26

Goðasteinn - 01.12.1964, Síða 26
þess sem hann fékk allmargt manna frá Flandern, Bretagne og öðrum nálægum löndum. Meiri hluti liðsins, sem er talið að hafi verið um 5000 manns, var fótgöngulið, og hinir voru brynjaðir riddarar. Stærsta vandamálið var að útvega nægilegan skipa- flota til að flytja innrásarliðið og meira en 2000 hesta, ásamt vopnum og vistum, yfir Ermasund. Vilhjálmur skipaði svo fyrir, að safna skyldi saman öllum skipum, er fyndust í höfnum í Normandie, og smíða mörg ný að auki. Um sumarið hafði hann fengið um 700 skip stór og smá. Var þá allt tilbúið til ferðar, en byr lét á sér standa, sem fyrr segir. Áróðurinn og herbúnaðurinn í Normandie fór ekki fram hjá Englendingum. Safnaði Haraldur konungur snemma sumars miklu liði og beið þess sem verða vildi. Er tíminn leið og ekkert gerð- ist, urðu hermann hans, sem flestir voru bændur, harla óþolin- móðir. 1 september var að því komið, að herinn leystist upp, því að bændur vildu fyrir alla muni fara heim til að vinna að uppskerunni. En í því komu þeir Tósti og Haraldur harðráði, svo að Haraldur Guðnason varð að halda liði sínu til móts við þá og berjast við þá 25. september, svo sem fyrr segir. Án þess að vita hið minnsta um, að keppinautur hefði komið frá Noregi, lét Vilhjálmur hertogi í Normandie biðja fyrir því í öllum kirkj- um landsins um sama leyti, að vindstaða breyttist og byr gæfi. Honum varð brátt að bæn sinni, því að hinn 27. september gekk veður til suðlægrar áttaf. Þegar að kvöldi sama dags lét Vil- hjálmur blása til brottfarar, og árla næsta morgun lagði flotinn að landi við strendur Sussexhéraðs. Þar flutti Vilhjálmur iið sitt og útbúnað á land og bjóst um örskammt frá þorpinu Hastings og ákvað að bíða þar Haralds konungs og manna hans. Haraldur Guðnason hraðaði för sinni suður England. Reyndi hann í leiðinni að efla lið sitt, og er gizkað á, að hann hafi haft um 6-7000 manna her. Fremur voru menn hans illa vopnum búnir og báru aðallega spjót og margvísleg barefli. Er England- ingar komu í námunda við Vilhjálm og menn hans, lét Haraldur þá taka sér stöðu á allhárri hæð og búast þar um. Grófu þeir djúpa skurði umhverfis hæðina ofanverða og ráku niður öfluga 24 Goðasteiwi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.