Goðasteinn - 01.12.1964, Side 30

Goðasteinn - 01.12.1964, Side 30
Erlingur Filippusson: Undrafyrirburður Áður en ég kcm að aðalefninu, verð ég að hafa nokkurn formála til skilningsauka fyrir þann, er þetta kann að lesa. Sumarið 1897 fluttu foreldrar mínir, Filippus Stefánsson og Þórunn Gísladóttir ljósmóðir, frá Kálfafellskoti í Fljótshverfi austur á Fljótsdalshérað, og voru þau, og það af systkinum mín- um er með þeim fór austur, á Fljótsdalshéraði það sumar, en fluttu til Seyðisfjarðar um haustið og voru þar um veturinn í húsi, er þau ætluðu að kaupa, en þó fórst fyrir. Vorið 1898 tóku þau jörðina Skálanes við Seyðisfjörð á leigu. Stunduðum við þar bæði sjó og land. Um haustið veiddum við talsvert af síld og settum nokkuð af henni í frystihús á Brimnesi. Veturinn 1898 kom til mála, að við keyptum jörðina Brúnavík við Borgarfjörð, og varð það svo afráðið með samningum, og skyldum við flytja vorið 1899, sem við gerðum um mánaðamótin maí og júní. Það var góðviðri um tíma, og var allt flutt á árabát, fólk og farangur. Við vorum þrír bræðurnir ,í þeim flutningum, ég, sem þetta rita, Sigurður og Gissur. Stefán varð eftir á Skálanesi, elztur og mestur búsýslumaður okkar bræðra, hann skyldi gæta þar fjárins fram yfir sauðburð. í síðustu ferðinni í þessum flutningum tókum við síld, sem við áttum í frystihúsinu á Brimnesi, og sama kvöidið og við komum norður beittum við línu og gáfum bræðrunum Árna og Sigurði Sveinssonum síld, svo þeir gætu líka fengið sér í soðið, ef fiskur væri. Brúnavíkina keyptum við af þeim, en þeir voru ekki fluttir af jörðinni þegar við komum. Við bræðurnir rerum um kvöldið, en þeim þótti of seint að róa. Við settum það ekkert fyrir okkur að róa út í vornóttina, þó við værum komnir frá Seyðisfirði. Við lögðum línuna djúpt norðaustur af Glettingsnesi 28 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.