Goðasteinn - 01.12.1964, Page 32

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 32
„Þetta er bara belgurinn okkar“, en um leið og ég sleppi orðinu, kemur belgurinn af brúsandi ferð alveg að borðstokkn- um í austurrúminu á bátnum, þar sem ég var vanur að taka línuna, svo mér þótti þetta orðið nokkuð skrítið og segi við drengina: „Róið þið dálítinn kipp, og við skulum sjá, hvað hann gerir. Eg tek ekki þenna belg eins og er.“ Þá leggst belgurinn í kjöl- farið og er svo sem 2 faðma frá stefni bátsins, og það er sama hvort við rerum hratt eða^ hægt, hann er alltaf jafnlangt frá bátnum. I þessari mynd fylgdi hann okkur nokkurn tíma, en á svipstundu breyttist hann í kolsvarta kúlu, geysilega stóra, og kom okkur saman um, að hún væri hátt á þriðja metra í þver- mál. Þannig fylgdi hún okkur nokkuð lengi og jafnlangt frá og belgurinn hafði verið. Eins og hendi væri veifað, fer kúlan að skjóta útúr sér kol- svörtum spjótum og með svo miklum hraða, að illt var að fylgjast með. Ég var með hlaðna byssu í bátnum, orðinn ofsa- reiður af þessum skrípalátum, stekk upp í bátnum með byssuna og segi: „Ég skýt á þenna andskota, hvað sem það er“, en þá segja drengirnir báðir undir eins: „Það skaltu ekki gera, því þá getur hlotizt verra af“. Lagði ég þá niður byssuna og tók árarnar. Eftir nokkra stund hætti þessi hrina, en þá komu tvær aðrar kúlur, aiveg eins og sú sem í kjölfarinu var, út af austurrúminu á bátnum og jafnlangt frá honum og sú sem eftir fór. Við rerum beint á Skjótanestanga, og eltu kúlurnar okkur í þessum stellingum hér um bil upp að landi en þá hurfu þær, sem voru útaf síðunum á bátnum, en sú, sem var í kjölfari bátsins, hélt áfram. Frá Skjótanesi, yzt, er klofið nokkuð hátt sker, og er sund fyrir innan skerið gegnum nesið, og á fjöru kemur upp flöt flúð sunnan við sundið. Ég segi við drengina: „Við skulum róa að flúðinni, brýna bátnum upp á hana og sjá hvað gerist, þegar við erum komnir í land.“ Við gerum þetta og horfum nú á þenna rokna belg, sem var alveg inni við flúðina nokkra stund, en strokkar sig þá geysihátt upp, skellir sér niður og er þá nýr Færeyjabátur, alveg eins 30 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.