Goðasteinn - 01.12.1964, Side 33

Goðasteinn - 01.12.1964, Side 33
og við sáum áðuf, með þremur mönnum. Þeir tóku til áranna af því offorsi, að ég hcf aldrei séð slíkt. Sjórinn gusaðist af árunum langar leiðir og hvítur garður til beggja handa, eins og þegar flugvél fer eftir sjó. Þeir stefndu fyrir Glettingsnes, og voru ekki nema nokkur augnablik, þar til þeir hurfu okkur fyrir nesið, og er þó æði langt á milli nesjanna. Eftir þetta rerum við oft á þessar slóðir og urðum aldrei neins varir, sem teljandi væri óeðlilegt. Sumir kunna að gefa þá einföldu skýringu á þessu, að það hafi verið missýning og ekkert annað. Sá slyddudómur finnst mér varla geta staðizt, þar sem við sáum þetta allir jafnt frá upphafi til enda, að minnsta kosti hálfan annan tíma, svo þetta var engin skyndisýn. Einu sinni sagði ég lögfræðingi þessa sögu; mig langaði að heyra skýringu hans á þessu fyrirbæri. Eftir nokkra stund kom skýringin: „Ætli það hafi ekki verið hnísa“. Ja, þá er nú hnísan orðin meiri kúnstagripurinn, stundum getur hún verið bátur með þrem mönnum og belgir af ýmissi gerð. Þetta þótti mér stór- merkileg skýring, eins og vænta mátti. En ætli það sé ekki nokkuð margt fyrir utan okkur sem við enn ekki skynjum né skiljum? Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.