Goðasteinn - 01.12.1964, Síða 35
Ég þekkti þig langan aldur landið mitt fagra,
lindin mín bláa,
ljós þitt og skuggar speglast í hjarta mínu -
og söngur þinn ómar sífellt í hjarta mínu.
Ég er ein hríslan í hlíðinni
rifin upp með rótum,
en í draumi mínum er ég eitt með þcr.
Flöskupóstur
Þorsteinn Jónsson læknir í Vestmannaeyjum og Páll Pálsson,
,,jökull“ sendu fyrsta flöskupóstinn frá Eyjum, köstuðu bréfa-
flösku út frá Eiðinu í hafviðri. Oddný Jónsdóttir á Bakka í
Landeyjum, f. 1852, d. 1887, fann flöskuna rekna á Bakkafjöru. 1
henni voru nokkur sendibréf, kvartalin af rullu til finnanda og
þessar tvær vísur, er Páll hafði ort:
Flaskan þessi ef finnast kann,
feginn vil ég biðja
kónginn jafnt sem kotbóndann
kviðinn hennar ryðja.
Svo útbýta bleðlunum,
brátt svo ýtar fái
sjá hvað nýtt í seðlunum
sendist nú frá Eyjum.
Margar bréfaflöskur bárust eftir þetta til landsins. Heppnaðist
oftast vel, ef veðrið var hagstætt og hleðslan hæfileg. Ævinlega
þótti þeim, sem fann, þetta skemmtilegur fundur.
Sögn frú Oddnýjar Guðmundsdóttur frá Stórólfshvoli.
Goðasteinn
33