Goðasteinn - 01.12.1964, Page 36
Þórður Tómasson:
ðlafnr Eiríhssun
kennari
Minning
Árið 1876 hleypti miðaldra bóndi undir Eyjafjöllum heim-
draganum, tók sig upp frá börnum og búi og sigldi til Kaup-
mannahafnar til að skoða heimsmenninguna. Var slíkt þá nær
óheyrt um óbreytta bændur á íslandi. Síðan gerðist af honum
saga mikil hér heima, vestur í Mormónalandinu Utah og í bók-
iðju. Þetta var Eiríkur Ólafsson á Brúnum. Sonur hans, Ólafur
kennari, andaðist 23. júní þ. á. og skorti þá eina viku á að
vera 93 ára.
Ólafur var fæddur á ættarsetri sínu, Hlíð undir Eyjafjöllum
1. júlí 1871. Móðir hans var Ragnheiður Jónsdóttir frá Neðra-
Dal undir Eyjafjöllum, Guðmundssonar, komin af góðum bænda-
ættum undir Eyjafjöllum og í Skaftafellssýslu. Eiríkur faðir hans
var sonur Ólafs Sigurðssonar í Hlíð, af ætt Crumbecks hins
skozka, sem bjó á Lambafelli undir Eyjafjöllum um 1600. Búa
niðjar hans enn í Hlíð í beinan karllegg. í móðurkyn var Eiríkur
á Brúnum kominn af Önnu og Hjalta á Stóru-Borg.
Ólafur Eiríksson naut þess láns að fá fóstur hjá Kort Hjör-
leifssyni í Berjaneskoti og konu hans Hallbjörgu Hallvarðsdóttur
frá Neðra-Dal. Reyndust þau honum sem góðir foreldrar. Hall-
34
Goðasteinn