Goðasteinn - 01.12.1964, Page 41

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 41
brauðinu og Kunningja. Þótti honum í fyrstu lítið til föður míns koma, en hann var Reykvíkingur og fákunnandi á sviði búskapar, og það sem verra var í augum Kunningja míns, presturinn átti engar kindur. Á heimili foreldra minna var margt vinnufólk fyrstu búskaparár þeirra. Það var þá í tízku og sjálfsagt nauðsyn- legt að hafa vinnumenn og vinnukonur. Það var allt ágætisfólk, en Kunningja samdi misjafnlega við það og þoldi oft illa smá- glettur, er í frammi voru hafðar, t. d. ef einn vinnumannanna reis upp í dögun, baulaði einum þrisvar sinnum og sagði: „Kristján, kýrnar eru farnar að baula“. En aðalstarf Kunningja var að gæta kúnna. Rauk þá Kunningi minn fram úr rúminu, þreif húfuna sína fyrst fata, dreif á höfuð sér og svaraði: „Baular þú sjálfur helv.. þitt“. Já hann þreif húfuna, en frá æsku hafði ekkert hár vaxið á höfði hans, og þótti honum það svo miður, að aldrei borðaði hann húfulaus heima í Holti svo ég muni til. Móðir mín spilaði á orgel, og sungum við börnin oft með henni, en einu sinni brá okkur heldur, heyrðum við, að Kunningi var meira en lítið særður og það svo, að hann bara grét, en við áttuðum okkur fljótt, kvæðið, sem við sungum, var Eyjafjalla- jökull eftir Bj. Thorarensen og endar svo: „Hven þar svo brenni mjög ef þú spyr að. Eyjafjallaskallinn gamli er það“. Og þegar við hættum, hraut sársaukalega út úr vini mínum: „Skalli ertu sjálfur helv. . asninn þinn.“ Var ljóð þetta síðan látið kyrrt liggja. Eitt var það líka, sem hann þoldi afar illa og eiginlega alls ekki, það var að talað væri um dauðann við hann, ekki mátti heldur kalla hann karl eða gamlan, ungur vildi hann lífinu lifa alla tíð. Væri hann inntur eftir aldri, svaraði hann jafnan: „Húsbóndi veit það, það stendur í bókinni“, en bókin var hin almenna prestsþjónustubók staðarins. Ef hann heyrði mannslát, brosti hann oft til mín og sagði: „Það deyja allir á undan mér væna mín“. Og víst var það, margir dóu á undan honum, en þó kom kallið til hans að lokum. Einu sinni kom áðurnefndum vinnumanni í hug að reyna sálarstyrk vinar míns og skyldi hann gefa Kunningja tryppi, og þó átti hann reyndar að vinna fyrir því á þann veg að þegja í hálftíma, hvernig sem á hann væri yrt. Stóðu nú leikar fyrst með ágætum, Kunningi þagði, og Goðasteinn 39

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.