Goðasteinn - 01.12.1964, Side 43

Goðasteinn - 01.12.1964, Side 43
tryppið var að falla í hans hlut, þegar vinnumanni hugkvæmdist að segja: „Séra Jakob, Kristján hlýtur að vera dáinn, við skulum leggja ofan á hann sálmabók“. Já, þarna kom hann að dauðan- um, þessum ógnvaldi, sem Kunningi mátti ekki hugsa til, hann rauk því upp og svaraði á síðustu mínútunni: „Dauður ertu sjálfur andsk. . þinn“. Þá varð nú gæfan ekki handsömuð meir, tryppið var úr sögunni. Þannig var hann Kunningi minn. Oft fór hann í sendiferðir, bæði eftir fólki í síma, en í Holti var land- símastöð, og svo sem meira var, hann fór í verzlunarferðir. Öll viðskipti voru skrifuð á blað, en honum þótti mjög mikið íil þessa trúnaðarstarfa koma. Allir voru honum líka innilega góðir. Man ég, er hann kom úr einni slíkri ferð, hafði hann þá lampa- glös meðferðis frá Jóhanni kaupmanni í Steinum, úti var svarta haustmyrkur, og auðvitað var Kunningi á hesti, því engar voru bifreiðar þá komnar undir Eyjafjöllum. Kallaði hann hátt til móður minnar: „Húsmóðir, hana taktu við þessu, það er óbrotið úr mínum lúkum“. Og svo fór hann að blessa húsfreyjuna Jónínu og sagði: „Hún gerði eins og handa gesti“. Þá fann hann, að hann var einhvers metinn, og það gladdi hann innilega. En nú var að vita, hvað húsfreyja hafði gert, en Kunningi gat ekki meira skýrt frá því. Ég fór svo að ræða við hann: „Setti hún kaffið á bakka?“ „Já“. „Og lét hún kökurnar á disk, er hún bauð þér með kaff- inu?“ ,,Já“. Það var ekki svo lítill viðburður í sálu vinar míns að hafa nú fengið kaffi, sem var borið fram með slíkri viðhöfn. Aldrei gat hann munað nöfn manna og h'tið yfirleitt af ýmsu, er hann vildi sagt hafa við okkur, en allt komst það þó til skila, við vorum orðin svo fim að raða þessum orðabrotum saman. Þegar vora tók í Holti og líf gægðist uppúr hverri laut og hinn yndislegi lækjarmosi glitraði í sólinni, greip útþrá Kunningja. Heilluðu þá hug hans tignarlegar Vestmannaeyjar, er risu úr hafi í suðvestri. Venja var, að bátar kæmu með vertíðarfólk upp að ströndinni og tækju þá til baka, er Eyjar vildu gista á gleði- stund. Kunningi var einn þeirra. Þar átti hann fjölmarga vini. Fól hann okkur yngri kynslóðinni að gæta hinna helgu dýra sinna, kúnna, hvað við og gerðum dyggilega. í Eyjum bar margt á góma, nóg tóbak á boðstólum og ef til vill tár í glasi. Lyftist Goðasteinn 4i

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.