Goðasteinn - 01.12.1964, Side 47

Goðasteinn - 01.12.1964, Side 47
ur stóð einn eftir, en hann gekk til fundar við skapara sinn, kraup á kné úti í hlöðu og bað um styrk, og guð bænheyrði hann; presthjónin, er við tóku, séra Jón M. Guðjónsson og frú Lilja Pálsdóttir, voru Kunningja sem beztu foreldrar. Svo leið hið fyrsta sumar, en er haustaði tók hann sér ferð á hendur til okkar í Reykjavík. Urðu þá fagnaðarfundir. Byrjuðu þá veizluhöld hjá honum og beztu vinum hans. Sígarettur hlóð- ust upp í stafla, reyktóbak, eldspýtur og jafnvel hoffmannsdropar, allt var þetta forði til ókomna tímans. Ein slík veizla var hjá Georg Ölafssyni bankastjóra, en hann hafði verið unglingur í Holti. Bankastjóri gaf alltaf mjög ríflega tóbak hverskonar, en er heim skyldi halda, innir mamma Kunningja eftir, hvort hann hafi þakkað fyrir sig, en hann var fljótur að svara og segir: „Nei, það vantar spýturnar", bankastjóri hafði reyndar gleymt að af- henda eldspýturnar. Varð úr þessu nokkur hlátur, og eldspýt- urnar komu. Marga ánægjustund átti Kunningi á heimili Guðbrands Magn- ússonar forstjóra á þessum ferðum sínum. Sungu þeir þá gjarnan vísu, er Kunningi hafði í æsku numið, og var hún á þessa leið: Ástin gerir ennþá mig ákaflega pína. Fæ ég ekki að faðma þig fallegasta Sína? Ekki fylgdi vísunni lag eða viss tónhæð, en hún var sungin með sínu lagi, og ekki hefði hann heldur flutt hana einn, styrkurinn var allur hjá Brandi, eins og hann kallaði þennan góða vin sinn. Margir aðrir, sem ég get ckki nefnt hér, voru Kunningja í þess- um ferðum drengir hinir beztu. Svo leið tíminn, og ég fluttist norður í Þingeyjarsýslu, í næsta nágrenni við æskustöðvar vinar míns, leiðir okkar lágu ekki saman eftir það. Elli sótti hann heim, og ljóminn yfir að vera síungur var horfinn, koma dauðans ekki lengur kvíðvænleg. Hann var sáttur við allt, forsjónin hafði lagt honum til góða vini á lífsgöngunni, og þrátt fyrir margt andstreymi átti hann ávallt góða húsbændur, hann var líka þeirra trúi þjónn. Að síðustu sagði hann við húsmóður sína: „Nú finn ég, að ég dey í nótt, •Goðasteinn 45

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.