Goðasteinn - 01.12.1964, Page 51

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 51
trúuð kona og sýndi trú sína í verkunum. Hún bar óskerta virðingu fyrir hinum æðra mætti tilverunnar og trúði af einlægni á líf eftir dauðann, enda mun hún oftlega hafa orðið ýmissa hluta vör, sem aðrir urðu ekki, og var unun að heyra hana ræða um þau málefni af eigin reynslu og annarra. Tel ég það lýsa henni hvað bezt, hvað aldrað fólk og uppgefið, sem fáa átti að, sótti til hennar og óskaði að eyða síðustu æviárunum í skjóli hennar. Gamalmennin, sem hún veitti hjúkrun og síðustu aðstoð hér í heimi, voru milli io og 20 á þeim 33 árum, sem hún réði húsum á Barkarstöðum. Þar var ekki unnið til launa, heldur af meðfæddri góðgirni og hjartahlýju til þeirra, sem voru olnboga- börn samtíðar sinnar og skorti úrræði til sjálfsbjargar. Stjórn- semi og ljúfmennska var henni svo í blóð borið, að ég minnist aldrei að hafa heyrt nokkurn skyldan eða vandalausan færast undan að vinna það verk, eða leysa þá þjónustu af hendi, sem hún óskaði. Margrét hafði yndi af tónlist, dætur hennar spiluðu flestar á harmonium, og tvær þeirra voru organistar í Hlíðar- endakirkju um árabil. Ég bað Sigurð son hennar, sem nú situr Barkarstaði og er oddviti sinnar sveitar, að draga upp eina mynd frá minningunum heima. Hann sagði svo: „Hún mamma var gód móðir og húsfreyja. Léttleiki hennar og hið góða geð var frá- bært, svo alltaf var í kring um hana ferskur blær og glaðvær. Þeim, sem muna rökkurkvöldin á Barkarstöðum, þegar húsfreyj- an tók gítarinn sinn og spilaði og söng með sinni þróttmiklu rödd, munu seint úr minni líða þær tilkomumiklu ánægjustundir’1. Margrét var fædd að Reynifelli á Rangárvöllum þ. 5. des. 1873. Hún var yngsta barn þeirra hjóna Guðrúnar Guðmundsdóttur af Núpakotsætt og Árna hreppstjóra Guðmundssonar, Brynjólfssonar á Keldum, af Víkingslækjarætt. Hún stundaði nám í Kvenna- skólanum í Reykjavík 1890-1891. Þann 10. júní 1892 giftist hún Tómasi Sigurðssyni, hreppstjóra á Barkarstöðum, og tók við búsforráðum þar. Þau hjónin áttu 11 börn. 3 þeirra dóu í æsku. Þau, er komust til fullorðinsára og lifa enn, eru þessi: Guðríður Þóra, gift Magnúsi Hannessyni frá Eyrarbakka, Ingibjörg, gift frænda sínum Ólafi Sigurðssyni frá Bitru, Goðasteinn 49

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.