Goðasteinn - 01.12.1964, Qupperneq 52
Árni, ógiftur, býr hjá Sigurði bróður sínum,
Sigurður, oddviti á Barkarstöðum, giftur Maríu Sigurðardóttur
frá Kársstöðum,
Guðrún, gift Jóni Sigurpálssyni frá Húsavík,
Sigríður, gift Jóni Þorsteinssyni frá Eyvindartungu, býr á Þór-
oddsstoðum í Ölfusi,
Anna, gift Óla B. Pálssyni frá Ytri Skógum og
Þórunn Marta, gift Haraldi Guðmundssyni, fasteignasala í
Rcykjavík.
Ekki er hægt að minnast Margrétar svo, að gengið verði fram
hjá Tómasi. Hann var einstakt prúðmenni, og voru þau hjón svo
samhent sem einn maður væri. Með framkomu sinni sköpuðu þau
slíkan heimilisbrag, að hliðstæður þekki ég fáar, og get ég aldrei
þakkað sem skyldi að hafa kynnzt þeim.
Áður en ég lýk þessu greinarkorni, get ég ekki stilt mig um
að minnast á Barkarstaðaheimilið í dag. Eins og áður er sagt,
býr Sigurður Tómasson þar, ásamt konu sinni, Maríu, og börnum
þeirra. Þeim hefur tekizt að halda svo við hinu góða, gamla
andrúmslofti, sem einkenndi þennan stað, að það er athyglisvert
nú um stundir í straumróti vélamenningarinnar.
Margrét lézt 29. jan. 1935 eftir stutta legu en stranga. Hún var
jörðuð að Hlíðarenda, í febrúar, að viðstöddu miklu fjölmenni.
Þar hafði góð kona og mikilhæf lokið þjóðnýtu starfi, og þar
hafði Rangárþing kvatt eina svipmestu húsfreyju héraðsins.
Bið ég öllum niðjum hennar Guðs blessunar.
50
Goðasteinn