Goðasteinn - 01.12.1964, Síða 58

Goðasteinn - 01.12.1964, Síða 58
Þegar komið er út fyrir grunnrif, taka allir á skipinu ofan höfuð- föt og gera bæn sína. Síðan er róið örskammt og rennt færi. Einn háseti var hafður í landi, þegar sjór þótti athugaverður. Var til þess valinn maður, sem var aðgætinn og hafði vit á sjó. Átti hann að gera skipinu viðvart, ef sjór versnaði. Stóð hann þá með veifu uppi á kampi og gekk með hana niður að sjó. Var alltaf talið sjálfsagt að taka þetta merki til greina og róa að landi. Þegar sjór var mjög vondur, var stanzað fyrir utan rifið. Gaf þá landmaður merki um, hvort lendandi væri. Gerði hann það með því að standa í skiptifjörunni, ganga þaðan niður að sjó og baða út höndum. Áliti hann ólendandi, gekk hann þá frá sjónum og upp á kamp. Var þá ekki annarrar lendingar að leita en í Vestmannaeyjum. Er þangað fullur fjögra tíma lognróður. Þegar róið er í land, ríður mikið á, ef nokkuð brim er, að lenda á síðasta sjónum. Tveir menn fara upp í sandinn með böndin, þegar skipið kennir grunns. Annað bandið er bundið í stefni skipsins en hitt undir þóftu um kinnunginn. Eru þau nefnd kolluband og hnútuband. Ekki er hægt að styðja skipið á floti, heldur verður að láta slá því flötu upp í fjöruna, og um leið fara þrír menn utanundir síðu skipsins, sjóborðsmegin, og styðja þar skipið og gæta þess, að það falli ekki á sjó. Skipið verður að liggja á hliðinni, meðan farmur er borinn úr því. Að því búnu er skipið rétt og það sett upp á kamp. Oftast nær er gengið frá því á hvolfi, annars fyllist það af sandi, því hér er vindasamt og sandfok mikið. Þegar þessu er lokið, eiga hestar að vera komnir í sand. Um róðurinn hefur þeirra verið gætt uppi á grösum. Þangað er alllöng leið, 2-4 km, og um svartan sand að fara. Mjög var þéttbýlt undir Eyjafjöllum, einkum nær sjónum. Mun fiskiaflinn hafa átt mikinn þátt í, að svo var, því síðan fyrir hann tók, hefur búendum fækkað um eða yfir 30. Einkum var þéttbýlt kringum prestssetrið Holt. Voru að minnsta kosti 20 búendur á jörðum, sem lágu undir það. Sú skylda hvíldi á land- setunum að róa á útvegi prestsins um vetrarvertíð. Þó að oft aflaðist vel við sandinn, leituðu ungir menn til 56 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.