Goðasteinn - 01.12.1964, Side 66
Gat Hjörleifur engri vörn Við komið. Hermann hélt þessu taki
stundarkorn og sagði: „Hérna læt ég þig nú fara, helvítið þitt,
ef þú þegir ekki og verður ekki góður“. Hjörleifi féll allur ketili
í eld og varð að ráði að lofa bót og betran. Leitaði hann ekki
oftar á Hermann.
-o-
Tómas Eyjólfsson bjó um þessar mundir í Gerðakoti á Mið-
nesi, mikill aflamaður og sjósóknari. Hafði hann austanmenn
marga að hásetum, suma ár eftir ár. Vetrarvertíðina 1886 voru
eftirtaldir Rangæingar í skiprúmi hjá honum, og kunna þó að
hafa verið fleiri: Jón Lafranzson á Yzta-Skála undir Eyjafjöllum,
Eiríkur og Árni Árnasynir frá Núpi í sömu sveit, Sigurhans og
Lúðvík Ólafssynir frá Stóru-Mörk, Hermann í Vatnahjáleigu,
Brynjólfur Jónsson í Vatnahjáleigu og Árni Guðmundsson, vinnu-
maður Boga Péturssonar, læknis í Kirkjubæ. Árni í Kirkjubæ
sagði draum sinn í byrjun vertíðar. Hann þóttist vera á ferð á
bleikum hesti og bar hratt yfir. Djúp klettagjá varð á vegi hans.
Vildi Árni sveigja hjá henni, en þess var enginn kostur, maður
og hestur hröpuðu ofan fyrir hengiflugið. Vaknaði Árni við það.
Skip Tómasar var tólfróið, skipað 18 mönnum. Miðvikudaginn
7. apríl var Tómas á leið tii lands í Stafnessjó með sæmilegan
afla innanborðs. Vindur var á landsunnan og segl höfð uppi.
Frönsk skúta sigldi sömu leið. Sá Tómas sér voða búinn af henni
og hleypti upp í vindinn. Frakkarnir gerðu þá slíkt hið sama
og kafsigldu skipið að bragði. Mölbrotnaði það við áreksturinn.
Nokkrir skipverjar náðu í kaðla, sem héngu út af skútunni og
héngu í þeim, en aðrir börðust fyrir lífi sínu á bátflakinu. Ekki
hreyfðu Frakkar hönd eða fót til bjargar. Brynjólfur í Vatnahjá-
leigu var hjólliðugur. Hann náði í kaðalenda og las sig upp eftir
honum. í skyndi kom hann kaðli til Hermanns félaga síns. Neytti
hann krafta sinna og komst skjótt upp í skútuna. Var þá snúður
á karli. Frakkar héldu enn að sér höndum. Hermann æddi ham-
stola að þeim, og hrukku þeir undan, eins og fjárhópur undan
hundi, en brátt voru flestar hendur á lofti við að bjarga. Gekk
það þó treglega, og leið nokkuð á aðra klukkustund, þar til
björgun var lokið. Meirihluti skipverja, 15 rnenn, komust upp í
64
Goðasteinn