Goðasteinn - 01.12.1964, Page 88
Þó ég kross með Kristó líði,
kalla má það æðstu prýði.
Þegar linnir þessu stríði
þá er unninn sigurinn.
Þú ert Jesús minn, minn.
Úti er þá eymd og kvíði,
ég kem þar sem dýrðin skín.
Hægist mér í hvert sinn ég hugsa til þín.
Sú réttlætis sólin skæra,
sem mig kann að endurnæra,
úr eymdardalnum upp að færa
í fagnaðarhimininn.
Þú ert Jesús minn, minn.
Sé þér dýrð og sungin æra
sögð af tungu mín.
Hægist mér í hvert sinn ég hugsa til þín.
Láttu mig vanda lofgjörð þína
lífs um alla hérvist mína.
Þegar ævidagarnir dvína
í dýrð himnanna leið mig inn.
Þú ert Jesús minn, minn.
Horfin er þá hryggð og pína
og hólpin sálin mín
Hægist mér í hvert sinn ég hugsa til þín.
Guð að sjá og Guðs útvalda,
gleði að ná um aldir alda,
hana að fá og henni halda
hjálpi mér dýrðarkóngurinn.
Þú ert Jesús minn, minn.
Þér lof tjá og það margfalda,
það skal kvæðisending mín.
Hægist mér í hvert sinn ég hugsa til þín.
.‘86
Goðasteinn