Goðasteinn - 01.12.1964, Side 90

Goðasteinn - 01.12.1964, Side 90
Goðasteinn þriggja dra Með þessu hefti lýkur 3. árgangi tímaritsins Goðasteinn. Árið 1962 hóf rit þetta göngu sína með aðeins einu hefti. Næsta ár komu út tvö hefti, og á þessu ári eru heftin þrjú. Óhætt mun að fullyrða, að Goðasteini hafi mætt velvild og góður skilningur, hvert sem leið hans hefur legið. Þetta hefur komið fram í sam- tölum við lesendur og í mörgum bréfum frá þeim. Einnig hafa ekki fáir orðið tii að rita um hann í blöð og tímarit og farið um hann lofsamlegum orðum. Þessu fögnum við og erum þakklátir fyrir og væntum þess, að rit okkar megi njóta sívaxandi vin- sælda. Fjöldi áskrifenda er orðinn allmikill og heldur áfram að auk- ast. Munu nú cinhverjir finnast í öllum sýslum og kaupstöðum landsins. Flestir eru þó kaupendurnir á Suðurlandi og þá eink- um í Rangárvallasýslu. Fjöldi ágætra karla og kvenna hafa á þessum árum orðið Goðasteini að liði, lagt honum til efni, unnið að útbreiðslu og innheimtu og á margan annan hátt stuðlað að viðgangi hans. Fyrir þessa margvíslegu aðstoð færum við hlut- aðeigandi alúðarþakkir okkar og vonumst til, að góð samvinna okkar megi halda áfram í framtíðinni. En þrátt fyrir vaxandi útbreiðslu, er fjárhagur ritsins ekki tryggur. Margir hafa þó lagzt á eitt, til þess að Goðasteinn mætti halda áfram göngu sinni. Er þar í fyrsta lagi að nefna hina mörgu skilvísu kaupendur, sem sumir hverjir hafa goldið hærra verð en þeim bar og sýnt þannig hug sinn til ritsins í verki. Þá hafa mörg fyrirtæki auglýst af miklum höfðingsskap á síðum þess og goldið fyrir ærið fé. Og að síðustu viljum við svo refna með alúðarþökk þær stofnanir, er beinlínis hafa lagt fé c.f mörkum 88 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.