Goðasteinn - 01.12.1964, Qupperneq 91
riti okkar til styrktar, en þær eru: Menningarsjóður Kaupfélags
Rangæinga, Búnaðarsamband Suðurlands, sýslunefnd Rangárvalla-
sýslu og sýslunefnd Vestur-Skaftafeilssýslu. Styrkir þessara aðila
hafa verið okkur afar mikilvægir og létt mjög róðurinn í útgáfu-
starfinu.
Við höfum hugleitt ýmsar nýjungar á næsta ári, en óvíst er
enn, hvort þær komast í framkvæmd að sinni. Margir hafa hvatt
okkur til að stækka ritið og hafa að minnsta kosti fjögur hefti
árlega. Einnig hafa ýmsir mælzt til þess, að notaður yrði betri
og dýrari pappír í það. Við munum reyna að koma til móts við
óskir lesenda okkar eftir getu. Hvort við getum tekið í notkun
betri pappír, mun koma í ljós, þegar fyrsta hefti 4. árgangs kem-
ur út snemma á næsta ári. Þá munum við einnig skýra frá, hvort
um fjölgun hefta verður að ræða og hvert er áætlað verð þess
árgangs.
Okkur er nauðsynlegt að áskrifendum fjölgi nokkuð frá því
sem nú er. Því biðjum við lesendur okkar og aðra, sem stuðla
vilja að viðgangi Goðasteins, að hjálpa okkur við að efla út-
breiðslu hans og fjölga áskrifendum. Vonumst við til, að svo
megi verða, og við munum sízt láta okkar eftir liggja til að búa
Goðastein sem bezt úr garði.
Ú tgefendur.
Leiðréttinð
Nokkrar villur slæddust með í nemendatali Skógaskóla í 2. hefti
3. árg. Goðasteins. Gefst vonandi tóm til að leiðrétta þær síðat.
Nafn eins nemanda hafði fallið niður og var það:
Elín Jóna Jónsdóttir, 1. 4. 1944, Vík, Mýrdal, V. Skaft. Hún
stundaði nám í Skógum 1960-1961.
Goðasteinn
89