Goðasteinn - 01.03.1971, Page 17
standa straum af aukakostnaði, scm hlytist af biðtíma skipa
vegna brims, fram yfir ákvcðinn og umsaminn fjölda uppskip-
unardaga. Náði þetta fram að ganga og svaraði það á vissan
hátt til fjár, sem hið opinbera varði til hafna og lendingarbóta
í öðrum landshlutum. Hélzt þessi skipan, þar til brúuð höfðu
verið öll stórfljót á lciðinni frá Reykjavík til Vestur-Skaftafelis-
sýslu, og flutningar með bifreiðum leystu af hólmi áhættusamar
siglingar og vöruuppskipun á brimströndina, er hefur óslitið úthaf
að balci allar götur til Suðurskautslandsins. Síðan breyttust allar
aðstæður við verzlun og flutninga við tilkomu vöruflutningabíls-
ins og leiddi sú breyting til þess að Kaupfélag Hallgcirseyjar
fluttist frá ströndinni í Landeyjum upp í Hvolsvöll, þar sem
það er nú.
Línum þcssum skal lokið með því að greina frá því, að
aðalforgöngumaður að stofnun Kaupfélags Hallgeirseyjar var hinn
fjölgáfaði framfaramaður, séra Jakob Ó. Lárusson í Holti. Starfs-
lið var aldrci margt fyrstu árin. Fyrsti bókhaldari félagsins var
Þorvaldur Stcphensen frá Holti í Önundarfirði, mikill og ör-
uggur skrifstofumaður. Síðan réðist þangað Ágúst Einarsson frá
Miðey, eftir að hann hafði lokið prófi frá Samvinnuskólanum.
Vann hann félaginu lengi og vel og varð síðar eftirmaður minn
í starfi. Þá er og að geta hins mikilvirka skrifstofu- og afgreiðslu-
manns, Gunnars Vigfússonar frá Flögu, sem góðu heilli gerðist
starfsmaður í Hallgeirsey þegar á öðru starfsári. Þá vil ég sér-
staklega minnast hins fjölhæfa gáfu- og menningarmanns, Sigurð-
ar Vigfússonar frá Brúnum, scm var ígripamaður hjá félaginu
öll fyrstu árin og jafnvígur til allra starfa. Hann er einn ógleym-
anlegasti gáfu- og gæðadrengur, sem ég hef kynnzt!
Þá er að minnast manna, sem mjög komu við sögu Kaupfélags
Hallgeirseyjar fyrstu árin, og það voru formenn á bátum þeim,
cr hafðir voru til út- og uppskipunar þarna á brimströndinni. Er
þar fyrstan að telja Guðjón Jónsson bónda í Haligeirsey, síðar
hreppstjóra í Austur-Landeyjum, sem var einn hinna fæddu for-
ystumanna til sjósóknar frá brimströndinni og ætíð var til ráðu-
neytis um, hvenær skyldi „kalla“ til flutninga. Aðrir brimstrand-
arformenn, sem þarna komu við sögu, voru Sæmundur Ólafsson,
Goðasteinn
15