Goðasteinn - 01.03.1971, Blaðsíða 62
fulla peninga fyrir innan sjö nátta eftir góðra manna virðingu.“
Jón Ásmundsson lögmaður úrskurðaði þennan dóm löglegan, og
var jörðin Kollabær í Fljótshlíð virt í jarðarverðið fyrir 50 hundr-
uð og þar til 10 búfjár kúgildi. Af þessu má þá líka sjá, að Stóri-
Dalur er virtur til 60 hundraða á þessum tíma.
Þessi dómur kom þó ekki til framkvæmda. Loftur hélt Stóra-
Dal og kemur jörðin við sögu árið 1430, er Loftur gefur sonum
sínum og Kristínar Oddsdóttur löggjafir í bréfi 20. apríl, en þar
ákveður hann ómagavist í Dal, og skal ómaginn vera af ætt Gísla
Andréssonar hins ríka í Mörk, sem þá var dáinn (d. 1428). Þetta
ákvæði er helztu rök þess, að telja Guðrúnu Haraldsdóttur móður
Gísla.
Frá Lofti ríka (1432) gekk Stóri-Dalur að erfðum til Eiríks
sonar hans á Grund í Eyjafirði og frá honum (1473) til sonar hans,
Sumarliða, en þá er það, scm ætt Helga Styrssonar rís upp og
krefst réttar síns. Sumarliði seldi Þorleifi Björnssyni hirðstjóra
Stóra-Dal 24. nóv. 1473. Sonarsonur Helga hirðstjóra, Helgi Teits-
son, kærði söluna og gcrði þá kröfu, að honum yrði dæmd jörðin
eftir dómnum, sem áður er um getið. Leiddi það til þess, að
dómur útnefndur af Erlendi Erlcndssyni sýslumanni í Rangár-
vallasýslu dæmdi „Helga Teitssyni jörðina Efra-Dal undir Eyja-
fjöllum til fullrar eignar og frjáls forræðis. En Þorleifur Björnsson
eiga aðgang með lögum að jörðinni Kollabæ og þeim 10 kúgild-
um, er þar voru til virð fyrir jörðina Efra-Dal (fsl. fornbréfasafn
V, bls. 803-804).“ Guðmundur Eiríksson bóndi í Kollabæ vildi
ekki láta jörð sína lausa, og var hann dæmdur til að afhenda
hana með dómi, sem felldur var í Fíflholti 30. okt. 1475. Hafði
Guðmundur ekkert skjal fyrir Kollabæ, og virðist svo sem jörðin
hafi legið laus fyrir til afhendingar móti Stóra-Dal, frá því, er
dómurinn gekk Helga Styrssyni í vil.
Þorvarður Eiríksson frá Grund, bróðir Sumarliða, varð bóindi
í Stóra-Dal og þaðan fór hann í Krossreið 1471 með Narfa Teits-
syni, bróður Helga. Var þá drepinn Magnús Jónsson bóndi á
Krossi. Veturinn eftir varð Þorvarður úti á Mýrdalssandi. Ekkja
Magnúsar, Ragnheiður Eiríksdóttir, giftist Eyjólfi Einarssyni frá
Möðrufelli í Eyjafirði, lögmanni og hirðstjóra. Ætla má, að
60
Goðasteinn