Úrval - 01.03.1979, Blaðsíða 11
9
HÚN ,,SÉR” ÞAÐ SEM ÖDRUM ER HULIÐ
tveimur turnum hvor, tvær brýr og
brunnið bílflak. Við ættum líklega að
tala við lögregluna.” Seinna skýrði
Ellen svo frá, að lögreglan hefði lítið
gert til að fela fyrirlitningu sína á
ófreskisgáfu.
William Jacobson hóf nú með
aðstoð ættingja og vina leit á Staten
Island að stað, sem líktist lýsingu
Dorothy. Sjötta daginn rakst hann á
stóran klett, sem á var málað með
stórum, rauðum stöfum: M A R.
Honum til undrunar blasti við
honum brunnið bílflak, tvær brýr og
tvær kirkjur, hvor með tveimur
turnum. Á þessu svæði var fullt af
djúpum opnum gröfum, fullum af
vatni, leifar af skipasmíðastöð, sem
þarna hafði verið komið upp á fyrri
heimstyrjaldarárunum.
Hann fór með Dorothy á staðinn.
Hún var viss um, að lík Susan væri
þarna einhvers staðar, en svæðið var
svo stórt, að hún stakk upp á því að
William fengi lögregluna til að leita
með sporhundum. Lögreglan
þverneitaði: ,,Hér fáumst við við
staðreyndir, en hlaupum ekki eftir
fyrirmælum kuklara.”
Næstu mánuði sóttu Jacobsons-
hjónin allt sitt traust til Dorothy.
Heimsóknirnar gengu á víxl.
Konurnar ræddust við í síma oft I
viku. ,,Ef Dottie hefði ekki verið,
hefðum við William bæði fengið
taugaáfall,” sagðiEllen.
23- mars 1978 — 22 mánuðum
eftir að Susan hvarf — vom þrír
drengir að veiða vatnarottur í skipa-
smíðagröfum, sem vatnið hafði
þornað úr. í einni gröfinni — sem
William hafði reynt að leita í en orðið
að gefast upp vegna vatnsins —
fundu þeir 2000 lítra tank, og í
honum leifar Susan Jacobson. Sex
vikum seinna var 18 ára unglingur,
kunningi Susan, sakaður um morð
hennar; hann bíður nú réttarhalda.
,,Það var léttir, þegar lík hennar
fannst,” sagði Ellen. ,,Við gátum þó
að minnsta kosti veitt henni
sómasamlega útför.
Stundum þyrmir yfir Dorothy,
þegar uppgötvanir hennar bera með
sér yfirgengilega þjáningu og sorg.
Einu sinni hætti hún að hjálpa
lögreglunni og öðrum, en komst
fljótlega að því að það var verra að
nota ekki eiginleikana heldur en
halda áfram. ,,Þetta er gjöf,” segir
hún. Og hún veit, að æ er gjöf til
gjalda — hún getur ekki goldið hana
öðm vísi en leyfa öðrum að njóta góðs
afhenni. ★
Ljósmyndarinn James Van Der Zee sagði svo um mynd af konunni
sinni, sem var tekin á hennar yngri árum og hékkí stofunni hjáþeim.
„Þegar hún var ung elskaði ég hana af því að hún var falleg, en þegar
hún eltist elskaði ég hana af því að ég þekkti hana. ’ ’