Úrval - 01.03.1979, Page 14

Úrval - 01.03.1979, Page 14
12 lJRVAL Þeir voru 47. Þeir höfðu verið teknir í herinn í kínverska hverfinu r New York. Þeir sem skráðu þá voru kínverskir ameríkanar, trúir landi sínu og samvikusamir, en þeir höfðu gleymt að taka tillit til þess, að þótt enska sé tungumál númer tvö í kína- hverfinu, er hún sannarlega númer eittí bandaríska hernum. Hinir kennararnir voru farnir. Ég varð að vera kaldur og yfirvegaður. ,,Ég er kennarinn ykkar! ” öskraði ég í samræmi við þá margprófuðu kenningu og allir skilji ensku, bara ef hún er hrópuð nógu hátt. Mennirnir kinkuðu ákaft kollum, fullir samúðar. ,,Fyrst lærum við fyrirskipanirnar,” hélt ég áfram. Einn eða tveir voru svo ánægðir með mig að þeir klöppuðu, en hinir veifuðu mér vingjarnlega. ,,Þegar ég segi „Standið rétt!” standið þið uppréttir, með hendur niður með síðum, svo þumlarnir liggi við sauminn á skálmunum, og hælana saman.” Ég sýndi þeim hvernig. Svo þrumaði ég: „Staaaandiið RÉTT!” Enginn hreyfði sig. Ég gekk til þeirra þreif í hávaxinn mann með langt andlit og lafandi hár og kippti honum á fætur. „Staaandiið RÉTT!” hrópaði ég aftur, og sleppti manninum. Hann heyktist til jarðar. En þegar ég hafði rykkt honum upp fimm eða sex sinnum og endurtekið skipunina, lánaðist honum að halda jafnvæginu á tveim fótum þótt ég sleppti honum — í keng þó. Ég var orðinn þreyttur og gaf frímínútur, hélt yfir í herversl- unina, keypti mér dós af bjór og hugleiddi í alvöru að sækja um að verða fluttur í sjóherinn. Þegar nemendur mínir sýndu enga framför eftir viku, fór ég að hafa áhyggjur af því að umsókn mín um að komast í gagnnjósnaþjónustuna kynni að verða tekin til endur- skoðunar. Ég jók tilraunir mínar um helming og næstum allur hópurinn reyndi að koma til móts við mig. En tveir úr hópnum, Tien Hung og Tom Chen voru alveg ómögulegir, á sinn ljúfa og trygglynda hátt. Tien Hung var feitur og glaðlyndur, Tom Chen langur og skinhoraður. Tien Hung brást eins við öllum skipunum: Hann snarstansaði, tók með höndunum fyrir andlitið, gægðist feimnislega milli fingranna og sagði: ,,Tien Hyng. Ég kokkur.” Þá sagði ég: ,,Tien Hung, þú ekki kokkur. Þú hermaður.” Þetta var nóg til að fá Tien Hung til að veina af hlátri. Þegar Tom Chen heyrði einhverja fyrirskipun, endurtók hann hana hástöfum, — en gerði svo þveröfugt. Og meðan ég barðist þessari baráttu, bjuggust þjóðverjar til að taka Krít og Rommel hrakti breta á undan sér til Súes. Ég skammaðist mín svo fyrir hópinn, að ég hætti að þjálfa hann á vellinum, heldur smaiaði honum út í skóg þar sem enginn sá okkur. Dag nokkurn kom blaðamaður frá staðar- blaðinu tii okkar. Honum hafði borist til eyrna að leynilegur,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.