Úrval - 01.03.1979, Side 17
KÍNVERSKA HERDEILDIN MÍN
15
„Hvað ert þú að gera hér?” ,,Minn
staður,” svaraði hann. ,,Eg kokkur.”
Svo rétti hann úr sér, herpti inn
belginn og heilsaði mér að
hermannasið eftir fínustu forskrift.
Ég svaraði ósjálfrátt og eins og í
leiðslu. Annað barnið, strákur, kom
hlaupandi til mín. „Heyrðu,” sagði
hann. „Pabbi segir að þú hafir verið
hershöfðinginn hansí stríðinu.”
Ég ætlaði að fara að leiðrétta
snáðann, þegar ég sá bænarsvipinn á
Tien Hung. „Það geturðu sveiað þér
upp á,” svaraði ég. „Ég var ló kvan
hans.” Svo stóð ég eins teinréttur og
mögulegt var með 15 réttaða máltíð
innanborðs, kvaddi með
hermannakveðju og gekk út. Mig
langaði að spyrja um Pearl Harbor,
Tom Chen og alla hina, en einhvern
veginn kom ég mér ekki að því.
Það var farið að snjóa. I
búðargluggunum fannst mér ég sjá
andlit kínversku herdeildarinnar
minnar speglast, öll brosandi. Ég
brostiámóti. ★
Til eru menn, sem ég hef ekki verið sérlega hrifinn af, en ég hef
aldrei hatað nokkurn mann nóg til þess að hafna demöntunum hans.
hafi hann boðið mérþá.
Zsa Zsa Gabor
Að setjast í helgan stein er draumsýn þeirra, sem hafa ekki gaman
af starfi sínu. Ég læt mig ekki dreyma dagdrauma. Ég lifi fyrir starfið
mitt og ætla ekki að hætta.
John Wayne
Beinarýrnun — fyrsta vísbendingin um að farið sé að halla undan
fæti fyrir manni — hefst þegar maður er um fertugt, segir Stanley M.
Garn, prófessor í næringarfræði og mannfræði við Michiganháskóla.
Það er þess vegna, segir hann, sem bein fólks sem komið er um eða
yfir miðjan aldur verða stökkari. Hann bætti því við, að konum væri
hættara við beinbrotum en körlum. Og konur rýrna meira með
ellinni heldur en karlar.
National Enquirer
Spölkorn norður af svæði því, sem kennt er við Panama skurðinn,
er „Dalur ferköntuðu trjánna.” Þetta er eini staðurinn í heiminum,
svo vitað sé, þar sem tré hafa ferkantaða boli og greinar. Þetta er sér-
stök trjátegund, sem nefnist Kapok.
M.T.