Úrval - 01.03.1979, Page 51

Úrval - 01.03.1979, Page 51
BRAGÐVÍSI FÖDUR DUDDLESWELL 49 hefði getað drepið einhvern.” Við kvöldverðarborðið var faðir Duddleswell rólegur og í góðu jafnvægi. Við messu morguninn eftir tiikynnti hann söfnuðinum að hann gæti ekki prédikað vegna þess að hann hefði kvefast. Hann sagði að niðursuðu vörurnar og leikföngin sem bjargast höfðu hefðu verið send á munaðarleysingjahælið. Hann þakkaði af hjarta öllum sem lagt höfðu basarnum lið og sagðist ekki efast um að tekjurnar af honum hefðu náð settu marki. Eftir þessa furðulegu yfirlýsingu, fór hann í rúmið — með óráði, það var ég viss um, og sjálfsagt með háan hita. „Þetta er ekki lungnabólga eins og búast mátti við,” sagði frú Pring bara slæmt kvef og hún hafði rétt fyrir sér. A miðvikudagsmorguninn hitti ég föður Duddleswell í borðstofunni. Við diskinn hans vom mörg bréf. ,,Það em tveir bunkar í viðbót, á skrifstofunni þinni,” sagði frú Pring um leið og hún bar fram morgun- verðinn. Á meðan faðir Duddleswell mataðist opnaði hann bréf og bréf með smjörhnífnum og gaf mér við og við skýringar á ,,þessu einstæða örlæti þessa góða safnaðar,” sem var að reyna að koma í veg fyrir vandræði. ,,Hér er póstávísun frá ellilífeyrisþega upp á tvö pund og tíu. Og hér er bréf sem óskar mér góðs bata og ávísun upp á pund.” Gleraugu hans fylltust móðu af geðs- hræringunni. Samt myndu bunkarnir á skrif- stofunni hans verða að koma til ef ná ætti því marki sem sett hafði verið. Hann hlýtur að hafa lesið hugsanir mínar. ,,Faðir Neil,” hvíslaði hann, ,,getum við nokkurn tíma kristnað þig?” Meðan ég sötraði kaffið rak hann upp fagnaðaróp: ,,Þetta er framlagið sem ég hef verið að bíða eftir.” Hann opnaði Iangt umslag og tók upp ávísun frá Moonlight tryggingar- félaginu að upphæð 600 pund. ,,Áttu við að þú hafír tryggt basarinn gegn rigningu?” spurði ég undrandi. ,,Ég geri það á hverju ári, faðir Neil. Það hefur ekki komið svo mikið sem dropi úr lofti síðastliðin átta ár og tryggingin kostaði bara tíu pund,. „Minna en tjaldið.” „Minnstu þess, faðir Neil, að við fengum þessi 600 pund vegna þess að basarinn bókstaflega flaut í burtu. ’ ’ í sömu mund kom frú Pring með ennþá stærra umslag. , ,Meira framlag frá þeim trúuðu, býst ég við,” sagði hún og staidraði við. ,,Þú mátt fara frú Pring,” sagði hann. ,,Ég er viss um að þú hefur í mörgu að snúast. ,,Mér liggur ekkert á,” sagði hún þvermóðskulega. Faðir Duddleswell hikaði ögn áður en hann opnaði umslagið og tók inni- haldið upp. Þarna lágu svo fleiri fímm punda seðlar en ég hafði nokkru sinni séð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.