Úrval - 01.03.1979, Síða 68
66,
ÚRVAL
réttilega til um kvörtunarefni karla
sinna, en karlarnir áttu erfiðara með
að hitta réttilega á hvað konur þeirra
voru ekki ánægðar með.
Mikilvægasta uppgötvun þessarar
rannsðknar er þó tvímælalaus sú, að
hlutverk konunnar í lífinu sem mun
mikilvægara en karlsins. Kynhegðun
karlsins snýst fyrst og fremst um að
geðjast konunni og reyna að stefna að
vellíðan hennar; geðþótti hans sjálfs
kemur í öðm sæti. ,,Þótt eitt sinn
hafí verið talið að það væri karlinn,
sem skrifaði, leikstýrði og léki sjálfur
aðalhlautverkið í kynlífsleiknum, en
konan væri í aukahlutverki,” sagir í
niðurstöðu skýrslunnar, ,,er óhætt að
fullyrða að minnsta kosti í hópi hinna
betur menntuðu og betur stæðu er
konan sá aðili, sem mest áhrif hefur í
sambandi við þenna þátt samlífsins.”
Stytt úr
New York Daily News
TILRAUNASTOFUKÚABÖLA
FARALDUR FRAMTÍÐAR-
INNAR?
Eftir kúabólutilfellið, sem upp
kom í Birmingham á Englandi á
síðasta ári, hafa vísindamenn styrkst í
ótta sínum við að ef ítmstu varkárni
sé ekki gætt, geti þessi áður banvæni
smitsjúkdómur aftur orðið að strá-
drepandi faraldri. Þótt kúabóla sé nú
almennt talin útdauð um allan heim,
er vírusnum enn haldið lifandi í
rannsóknarskyni á rannsóknarstofum.
Þegar tilfellið í Birmingham kom
upp, sem afleiðing af tilraunastofu-
slysi, var kúabóluvímsinn til í tals-
verðu upplagi í 12 rannsóknastofum.
Margir vísindamenn hafa áhyggjur af
því, að eftir 20, 50 eða 100 ár, þegar
enginn er uppi bólusettur fyrir
kúabólu, geti slys af þessu tagi orðið
að heimsfaraldri.
Alþjóðaheilsugæslustofnunin
(WHO) hefur beðið allar rannsóknar-
stofur heimsins, að fjómm undan-
skildum, að eyðileggja kúabólu-
vímsinn hjá sér eða koma honum á
rannsóknamiðstöð WHO í Atlanta 1
Bandaríkjunum. Hafa sumar orðið
við þessu, en aðrar ekki. Af
rannsóknarstofunni í Birmingham,
sem frá sagði 1 upphafí, er það að
frétta að hún var innsigluð er slysið
varð og rannsókn hafin á því hvernig
smitið gat borið að höndum. Þeirri
rannsókn er ekki lokið er þetta er
ritað.
Úr Westinghouse Broadcasting Co.
7p* Vpv 7JV Ví\
„Hvernig hafíð þið sambýlisfélagarnir leyst uppþvottavandamálið?”
spurði ég son minn, sem leigði í fyrsta sinn sjálfuríbúð. Eg hafði séð
ógrynni af óhreinum diskum í eldhúsinu.
„Ekkert vandamál,” svaraði hann. ,,Matti og ég höfum gert
samkomulag. Sá sem óhreinkar síðasta hreina diskinn verður að opna
nýjanpakka.” -A.G.