Úrval - 01.03.1979, Page 74
i:
ÚRVAL
tengslin og hjónabandið aukinni
menningu.
Margir hjðnaskilnaðir i dag eiga
rætur að rekja til þess að fólk er að
verja persónulegt sjálfstæði sitt.
Heimskuleg kenning þess efnis, að
ungu hjóni „hafi orði sammála um
að lifa þannig, að þau hefti ekki frelsi
hvors annars”, er venjulega notuð
sem réttlæting fyrir gagnkvæmri
ónærgætni og siðferðilegri fávísi. En
ábyrgðarleysi gagnvart einhverjum
nákomnum og kærum, sveipað í
dulargervi frelsis, er andstætt
merkingu fjölskylullfins.
,,Þú ert skuldbundinn”, ,,Ég er
skuldbundinn þér”. — Á þessum
grundvelli er unnt að reisa ábatasamt
hagræðishjónaband. En fyrir tvær
manneskjur, sem unna hvor annarri,
er forskriftin allt önnur: Ég hegða
mér á þann veg sem gott er fyrir
eiginmann minn (eða eiginkonu), og
þess vegna líður mér einnig vel.
Það er ekkert undarlegt þótt menn
segðu til forna: Alið konuna upp,
undir því er komin vellíðan
karlmannsins innan fjölskyldunnar.
Við nýjar þróunaraðstæður í
mannlegu samfélagi sjáum við
spekina í þessari gömlu hugsun. En
ein leiðrétting er lífsnauðsynleg þegar
haft er í huga fullt sjálfstæði konunn-
ar og jafnrétti hennar við karla. Lát-
um fjölskylduna aldrei aftur verða
einu réttlætinguna fyrir lífi konunnar.
Látum hana verða höfuðprýði þess.
★
Tvær franskar púðlur (sérstök tegund loðhunda) stóðu og biðu
eftir gönguljósi, þegar blandaður flækingshundur tók sér stöðu við
hlið þeirra. Onnur púðlan leit á hina, deplaði öðru auga, en sagði svo
með miklu yfirlæti við blendinginn: ,,Eg heiti Min-jónet — stafað
Mignonette.” Hin púðlan fór að dæmi stöllu sinnar og sagði: ,,Ég
heiti Sjamp-enúa — og það er stafað Champenois.” Blendingurinn
leit ekki einu sinni á þær, en svaraði kurteislega: ,,Ég heiti Fídó —
stafað P-h-i-d-e-a-u-x. ’ ’
Table Talk
Ef ég hef skilið rétt, eyðileggur neftrónusprengjan ekki borgir,
byggingar eða tæki — bara fólk. Hvað er þá verið að fárast? Við
höfum svona fyrirbæri nú þegar. Það er kallað skattar.
Robert Orben
Stórkostlegasti skemmtikraftur sem ég þekki er Henny
Youngman. Hann er hetja. Hann veður upp á sviðið og reitir af sér
30 bandara, og enginn hlær nema í mesta lagi að fjórum þeirra. Ég
dáist að þessum kjarki. Bob Hope