Úrval - 01.03.1979, Síða 77
RÚSSNESKA SÓKNIN í VESTRÆNA VÖRUFLUTNINGA
75
Þyngsta áherslu leggja rússar á
„Gullna þríhyrninginn” —
hafnirnar sem eru hlið iðnaðarins í
Vesturevrópu. Fyrir einum áratug
voru sovésk skip fáséð í þeim
höfnum, en nú fara rúmlega 1000
skip á ári um Hamborg, 1200 um
Rotterdam, og 1500 — fjögur á dag
— um Antwerpen. I þessum stóru
höfnum eru flutningamiðlarar með
fjöll af flutningi næmir fyrir lægsta
verði í skipaflutningum, og rússarnir
þyrpast að þeim eins og flugur að
hunangi.
Það er nógu erfitt fyrir vestræn
skipafélög að horfa á stór-
framleiðendur hins frjálsa heims fela
sovétmönnum flutning á framleiðslu-
vöru sinni. En þegar ríkisstjórnirnar
fara að dæmi þeirra, er mælirinn
fullur. Mótmælaöldur risu, þegar
uppvíst varð að bresku og hollensku
póststjórnirnar höfðu samið við
sovésk skip um flutning á verulegum
hluta hins alþjóðlega pósts frá
þessum löndum. Reiðari urðu þó
hollendingar og vesturþjóðverjar,
þegar það spurðist að sovétmönnum
hefði tekist að fá hlutdeild í hjálpar-
áætlun efnahagsbandalagslandanna
til handa vanþróuðu löndunum.
Rússar hafa meira að segja komist á
mála hjá Bandaríkjastjórn. Nýlega
keypti bandaríska samgöngu-
ráðuneytið 400 þýska strætisvagna til
almennra fólksflutninga. Þegar 50
þessara vagna komu til Houston á
tveimur rússneskum skipum, var
bandarískum skipaútgerðum nóg
boðið. ,,Við hefðum ekki einu sinni
getað greitt eldsneytiskostnaðinn yfir
hafið fyrir það verð, sem rússar fluttu
bílana á,” sagði talsmaður eins
skipafélagsins, sem bauð í
flutningana.
Sovétríkin geta réttlætt öll framlög
til kaupskipaflotans vegna alls þess
óbeina hagnaðar, sem þessar siglingar
hafa 1 för með sér. Fyrst og fremst er
það pólitískur ávinningur.
Kommúnistar vita það fullvel, hve
mikilsvirði það er pólitískt séð, að
hamarinn og sigðin séu algeng sjón 1
höfnum heimsins — ekki síst í hinum
vanþróaða þriðja heimi. I öðru lagi er
heppilegt frá þeirra sjónarmiði að
kaupskipaflotinn fari sem víðast, því
hann er um leið hluti af herveldi
þeirra. Menn úr sovéska sjóhernum
gegna hluta af herskyldu sinni á
farskipunum, og olíuflutningaskipin
sjá herskipum sovétmanna fyrir olíu-
birgðum hvar sem þau fara. Þar að
auki eru flest nýjustu flutningaskip
rússa svokölluð ,,ak í — ak úr” (roll-
on/roll-off) skip, sem þýðir að þau
væru upplögð til þess að landa
hertækjum upp á strendur eða í illa
búnum höfnum. Og mörg
„venjuleg” flutningaskip þeirra eru
með löngum lestarlúgum, sem gera
kleift að lesta óvenjulangan flutning,
eins og fram kom í eldflaugadeilunni
við Kúbu 1962.
Annað dæmi um sameinað
hernaðar- og flutningahlutverk
sovéska kaupskipaflotans er viðskipti
hans við Afríkuþjóðir. Þangað Iiggur